fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Suðurnesjalína 2 styrkir raforkuöryggi á Suðurnesjum

Suðurnesjalína 2 var spennusett 19. nóvember. Með tilkomu línunnar fá Suðurnes aðra tengingu við flutningskerfi raforku. Það eykur afhendingaröryggi fyrir íbúa og fyrirtæki og skapar betri skilyrði fyrir atvinnuuppbyggingu á svæðinu.

Suðurnesjalína 1 hefur fram til þessa verið eina flutningsleið raforku milli Suðurnesja og höfuðborgarsvæðisins. Með tveimur tengingum verður auðveldara að sinna viðhaldi og bregðast við bilunum. Aukin flutningsgeta mætir vaxandi raforkuþörf á Suðurnesjum og eykur jafnframt möguleika á að flytja raforku frá virkjunum á Reykjanesi.

Mikilvægur áfangi fyrir íbúa og atvinnulíf

Berglind, framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, segir tilkomu línunnar skipta miklu máli fyrir svæðið. Tryggari afhending raforku sé mikilvæg fyrir íbúa og fyrirtæki, sérstaklega með tilliti til náttúruvár. Aukin flutningsgeta skipti einnig máli fyrir fyrirtæki sem vilja byggja upp starfsemi á Suðurnesjum.

Berglind bendir á að spár Landsnets geri ráð fyrir að eftirspurn eftir raforku á Suðurnesjum tvöfaldist til ársins 2050. „Rafmagn er bara innviður sem þarf alltaf að vera á skrefi á undan,“ segir hún.

Um 30 kílómetra lína milli Hafnarfjarðar og Njarðvíkurheiðar

Suðurnesjalína 2 er 220 kV háspennulína milli tengivirkjanna í Hamranesi í Hafnarfirði og á Njarðvíkurheiði. Línan er um 30 kílómetra löng og liggur að mestu í lofti, en næst Hamranesi er hún í jarðstreng. Undirbúningur hófst árið 2005 og jarðvinna við loftlínuhlutann hófst að nýju í júlí 2024.