Afhendingarathöfn Uppbyggingarsjóðs frestað
Afhendingu Uppbyggingarsjóðs Suðurnesja sem fara átti fram í Hljómahöll, Stapa kl. 17 í dag hefur verið frestað.
Hljómahöll hefur verið lokað vegna tilmæla frá Almannavörnum sem hafa biðlað til íbúa á Suðurnesjum að spara allt rafmagn og heitt vatn.
Það er því ljóst að ekki verður hægt að afhenda styrki við hátíðlega athöfn eins og fyrirhugað var og er beðist velvirðingar á því.
Frekari upplýsingar verða sendar út síðar.