fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Aukaúthlutun menningarstyrkja úr Uppbyggingarsjóði Suðurnesja

Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum (SSS) hefur fengið aukafjármuni frá fjárlaganefnd til úthlutunar í Uppbyggingarsjóð Suðurnesja. Af því tilefni hefur verið ákveðið að ráðast í sérstaka aukaúthlutun menningarstyrkja.

Í þessari úthlutun verður lögð áhersla á annars vegar minjar, söfn og varðveislu menningararfs, þar á meðal verkefni einkasafna, og hins vegar menningarviðburði tengda Sólmyrkva, svo sem tónleika, listsýningar og fræðsluviðburði.

Umsóknarfrestur er frá 24. mars til 24. apríl.
Umsóknir skulu sendar á: uppbyggingarsjodur@sss.is

Nánari upplýsingar um umsóknarferli og skilyrði má finna hér.