Forvitnir frumkvöðlar fer vel af stað
Á þriðjudag fór fram fyrsti fyrirlestur á vegum Forvitinna frumkvöðla, en það er heiti fyrirlestraraðar á vegum landshlutasamtakanna á Íslandi: Austurbrúar, SASS, SSNE, SSNV, SSS, SSV og Vestfjarðarstofu. Það var Arnar Sigurðsson sem reið á vaðið og fjallaði fyrirlestur hans um frumkvöðlaferlið, sem er vel við hæfi til að setja tóninn fyrir framhaldið hjá þeim fjölmörgu gerðum frumkvöðla sem fyrirfinnast hér á landi. Gaman var að sjá góða mætingu á viðburðinn og finna þakklætið fyrir framtakið.
Fyrirlestur Arnars var skemmtilegur og vekjandi í ljósi þess sem frumkvöðlar standa frammi fyrir. Áhugavert var að heyra Arnar tala um að fólk tengi ekki endilega við hugtakið frumkvöðull og skilgreini sig sjálft síður sem slíkan.
Ráðgjafar um land
Frumkvöðlum á landsbyggðinni stendur til boða ráðgjöf hjá landshlutasamtökum auk þess sem verkefnastjórar sinna bæði fræðslu og standa reglulega fyrir nýsköpunarviðburðum. Ef þú ert með nýja hugmynd sem þig langar að fylgja úr hlaði – heimsæktu atvinnuráðgjafa í þínum landshluta! Þar er kostur á ráðgjöf sem snert getur á ólíkum þáttum frumkvöðlaferlisins, auk þess sem þar er þekking á sjóðakerfinu sem fyrirfinnst hér á landi og á verkfærakistum sem hægt er að nýta sér.
Á Austurlandi má snúa sér til Austurbrúar
Á Suðurlandi má snúa sér til SASS, Hreiðursins, Nýheima
Á norðurlandi eystra má snúa sér til SSNE
Á norðurlandi vestra má snúa sér til SSNV
Á Suðurnesjum má snúa sér til SSS, Heklunnar
Á Vesturlandi má snúa sér til SSV, Nývest
Á Vestfjörðum má leita til Vestfjarðastofu sem er með starfsstöðvar á Ísafirði, Patreksfirði og Hólmavík.
Við hvetjum fólk til að setja sig í samband ef það vill koma verkefnum sínum á koppinn. Atvinnuráðgjafar um landið halda líka almennt vel utan um umsóknarfresti í ólíka sjóði, en einnig má benda á styrkjadagatal skapa.is sem hægt er að nálgast hér.
Fyrirlestur Arnars er hægt að sjá hér: