fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Grindavík – saman í sókn: úr samtali í aðgerðir

Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum (SSS) auglýsir eftir þátttakendum í verkefnið Grindavík – saman í sókn, sem er framhaldsverkefni byggt á þeirri vinnu sem þegar hefur átt sér stað með fyrirtækjum og frumkvöðlum í Grindavík.

Markmið verkefnisins er að efla samstarf, hraða aðgerðum og styðja við uppbyggingu fjölbreytts og samkeppnishæfs atvinnulífs í bænum. Áhersla er lögð á að tengja saman ólíka aðila innan vistkerfis Grindavíkur – fyrirtæki, stofnanir og frumkvöðla – og vinna markvisst að þróun og framkvæmd forgangsverkefna sem styðja við verðmætasköpun, nýsköpun og jákvæða framtíðarsýn.

Verkefnið byggir á hugmyndafræði klasasamstarfs og fyrri kortlagningarvinnu þar sem samtal er fært yfir í skýr verkefni og framkvæmd.

Umsóknarfrestur er til 11. maí 2026

Í tengslum við verkefnið verður haldinn kynningar- og umræðufundur miðvikudaginn 7. maí kl. 15:00 í Grindavík, þar sem farið verður yfir markmið, framkvæmd og næstu skref. Nánari staðsetning verður send til þeirra sem skrá sig.

Skráning á fundinn
Nánari upplýsingar og umsókn

Verkefnið er framkvæmt af Íslenska ferðaklasanum fyrir Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum og í samstarfi við Markaðsstofu Reykjanes, Hekluna og Grindavíkurbæ. Verkefnið er fjármagnað af Byggðaáætlun

SSS hvetur aðila í atvinnulífi Grindavíkur til að taka þátt í verkefninu og leggja sitt af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar og þróunar svæðisins.