fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

ReThink verkefnið fer af stað á Reykjanesi

Markaðsstofa Reykjaness tekur þátt í alþjóðlega samstarfsverkefninu ReThink, sem hefur það markmið að efla þróun nærandi ferðaþjónustu á Norðurslóðum og Norðurlöndum. Verkefnið er styrkt af Interreg Northern Periphery and Arctic Programme (NPA) og byggir á fyrri verkefnum á borð við REGGAE og REGENERATE.

Í verkefninu vinna samstarfsaðilar frá Íslandi, Finnlandi og Svíþjóð að því að þróa áfram þekkingu, verkfæri og samstarf sem styður við sjálfbæra og nærandi þróun ferðaþjónustu til framtíðar. Sérstök áhersla er lögð á að þróa hagnýt verkfæri fyrir áfangastaðastofur, sveitarfélög og aðra hagaðila innan ferðaþjónustunnar.

Verkefnið mun meðal annars:

  • Safna saman og þróa áfram niðurstöður fyrri verkefna
  • Efla samstarf og tengslamyndun milli svæða og hagaðila
  • Þróa verkfærakistu fyrir nærandi ferðaþjónustu
  • Miðla þekkingu og góðum dæmum tengdum nærandi nálgun í ferðaþjónustu

ReThink verkefnið stendur til mars 2027 og er ætlað að skapa sterkari grunn fyrir langtímaþróun ferðaþjónustu þar sem sjálfbærni, seigla og jákvæð áhrif á samfélög og náttúru eru höfð að leiðarljósi.

Nánari upplýsingar um verkefnið og markmið þess má finna hér:
ReThink – samstarfsverkefni um nærandi ferðaþjónustu á Norðurslóðum