Startup Landið í sviðsljósinu á Nýsköpunarvikunni

Nýsköpun á landsbyggðinni í brennidepli
Nýsköpun á landsbyggðinni var í brennidepli á hliðarviðburði Startup Landið sem fram fór á Nýsköpunarvikunni á dögunum. Þar komu saman frumkvöðlar, atvinnuþróunarfélög og verkefnastjórar víða af landinu til að ræða tækifæri, áskoranir og framtíð nýsköpunar utan höfuðborgarsvæðisins.
Á viðburðinum kynntu þátttakendur úr Startup Landinu verkefni sín í stuttum og lifandi pitch-kynningum ásamt því að frumkvöðlar sem hafa náð lengra á sinni vegferð sögðu frá reynslu sinni, allt frá fyrstu hugmynd að uppbyggingu fyrirtækis.
Hvað er Startup Landið?
Startup Landið er samstarfsverkefni landshlutasamtaka og atvinnuþróunarfélaga um allt land sem hefur það markmið að styðja við frumkvöðla á landsbyggðinni og efla nýsköpun í nærumhverfinu.
Verkefnið skapar vettvang fyrir tengslamyndun, handleiðslu og stuðning við fólk með hugmyndir og metnað til að þróa verkefni áfram. Með samstarfinu er lögð áhersla á að styrkja nýsköpunarumhverfi landsbyggðarinnar og skapa fleiri tækifæri til vaxtar og verðmætasköpunar um land allt.
Suðurnesin hluti af verkefninu
Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum tekur þátt í verkefninu í gegnum Hekluna atvinnuþróunarfélag Suðurnesja og voru fulltrúar þaðan meðal þátttakenda á viðburðinum.
Meðal þeirra sem héldu kynningu á hliðarviðburðinum var Kenichi Noda, framkvæmdastjóri ICHIGO – Japönsk jarðarber, sem staðsett er í Græna iðngarðinum í Helguvík.
„Okkur finnst mikilvægt að vekja athygli á nýsköpun á landsbyggðinni og um leið gera okkar þjónustu sýnilegri en við veitum ráðgjöf til sprota og frumkvöðla um land allt. Frumkvöðlar á Suðurnesjum geta fengið stuðning og ráðgjöf í heimabyggð hjá okkur og það er líka styrkur fyrir þá að kynnast frumkvöðlum annars staðar af landinu og deila þekkingu. Þá er afar jákvætt að landshlutasamtökin eru farin að starfa saman að nýsköpun á ýmsum sviðum en við höfum auk Startup Landið verið með Fræðsluráð fyrir frumkvöðla undir heitinu Forvitnir frumkvöðlar og vinnum að því að gera upplýsingar fyrir frumkvöðla á landsbyggðinni aðgengilegri.“ segir Dagný Maggýjar, verkefnastjóri hjá Heklunni atvinnuþróunarfélagi Suðurnesja.

Opið fyrir umsóknir
Nú er opið fyrir umsóknir í næstu umferð Startup Landsins og er umsóknarfrestur til 1. september. Hægt er að sækja um á startuplandid.is.
Startup Landið er ætlað einstaklingum og teymum sem eru með hugmyndir eða verkefni sem þau vilja þróa áfram með stuðningi, tengslaneti og handleiðslu. Verkefnið er opið frumkvöðlum víða af landsbyggðinni sem vilja taka næsta skref í sinni vegferð.
Mikilvægt að styðja við nýsköpun víða um land
Viðburðurinn vakti athygli á því hversu fjölbreytt og öflug nýsköpun er að verða víða um landið og mikilvægi þess að halda áfram að byggja upp sterkt stuðningsumhverfi fyrir frumkvöðla, sama hvar þeir eru staðsettir.