Örvar: Sjóður til að efla skapandi hugsun og hugvit
Nýtt menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti (MNH) tekur formlega til starfa í marsmánuði og hefur sett á stofn nýjan sjóð sem veitir styrki til verkefna og viðburða á málefnasviðum ráðuneytisins.
Sjóðurinn hefur fengið heitið Örvar og tekur við af sjóðunum Hvata og Glókolli sem hafa verið lagðir niður. Þessar breytingar taka gildi 15. mars. Opið verður fyrir umsóknir úr Örvari allt árið og úthlutað ársfjórðungslega. Hámarksupphæð styrkja er 1 m.kr. Ekki eru veittir styrkir til ríkisstofnana eða sveitarfélaga. Matsnefnd fer yfir umsóknir á 3 mánaða fresti og gerir tillögu til ráðherra um úthlutun fjárstyrkja. Svarbréf eru send til umsækjenda í kjölfarið. Nánari upplýsingar verða aðgengilegar þegar opnað verður fyrir umsóknir um miðjan mars n.k. og verður sjóðurinn auglýstur sérstaklega við það tilefni.
Málefnasvið hins nýja ráðuneytis eru fjölbreytt en miða öll að því að efla hugvit, skapandi hugsun og þekkingu í menningu, nýsköpun og háskólastarfi til framtíðar.