fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Hringferð SA 2026: Grindavík

Föstudaginn 12. júní verður næsti viðkomustaður Hringferðar Samtaka atvinnulífsins (SA) í Grindavík. Hringferðin er haldin undir yfirskriftinni „Rjúfum vítahringinn“ og hefur það að markmiði að efla umræðu um stöðu atvinnulífsins og þær aðgerðir sem þarf til að ná auknum stöðugleika í efnahagslífinu.

Á opnum fundum víðs vegar um landið ræða fulltrúar atvinnulífs, sveitarfélaga og annarra hagaðila um helstu áskoranir og tækifæri á hverjum stað. Sérstök áhersla er lögð á hvernig megi styrkja samkeppnishæfni, bæta rekstrarskilyrði fyrirtækja og skapa grundvöll fyrir aukin lífsgæði um allt land.

Mikilvæg umræða fyrir Suðurnes

Grindavík hefur staðið frammi fyrir fordæmalausum áskorunum á síðustu misserum og því er mikilvægt að skapa vettvang fyrir samtal um framtíð atvinnulífs og samfélags á svæðinu. Fundurinn gefur þátttakendum tækifæri til að deila reynslu, sjónarmiðum og hugmyndum um hvernig megi styðja við áframhaldandi uppbyggingu og þróun.

Opið öllum áhugasömum

Fundurinn fer fram á Bryggjunni í Grindavík föstudaginn 12. júní. Húsið opnar kl. 08:15 og eru allir áhugasamir velkomnir.

Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum hvetur fyrirtæki, sveitarstjórnarfólk og aðra hagaðila til að taka þátt í umræðunni og leggja sitt af mörkum til að móta framtíð atvinnulífs á Suðurnesjum.

Bryggjan, Grindavík
12. júní 2026
Húsið opnar kl. 08:15

Nánari upplýsingar og skráning má finna hér.