410. fundur SSS 18. nóvember 1996
Árið 1996 er fundur haldinn í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum mánudaginn 18. nóvember kl. 21.00.
Mætt eru: Drífa Sigfúsdóttir, Sigurður Jónsson, Jón Gunnarsson, Pétur Brynjarsson, Hallgrímur Bogason, Guðjón Guðmundsson og Jóhanna M. Einarsdóttir ritari. Sigurður Valur Ásbjarnarson sat einnig fundinn.
Dagskrá:
1. Málefni D-álmu.
Samninganefnd um byggingu D-álmu gerði grein fyrir störfum sínum og lagði fram samning.
Gert var hlé á stjórnarfundi á meðan samningurinn var kynntur sveitar-stjórnarmönnum á Suðurnesjum. Að kynningarfundi loknum fór stjórn S.S.S. yfir stöðu mála.
Samþykkt að halda næsta fund n.k. fimmtudag.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 00.30.