453. fundur SSS 3. desember 1998
Árið 1998 er fundur haldinn í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum fimmtudaginn 3. desember kl. 15.00.
Mætt eru: Skúli Skúlason, Sigurður Jónsson, Þóra Bragadóttir, Óskar Gunnarsson, Hallgrímur Bogason, Guðjón Guðmundsson framkv.stj. og Jóhanna M. Einarsdóttir ritari.
Dagskrá:
1. Fundargerðir Bláfjallanefndar dags. 21/10 og 12/11 1998 lagðar fram og samþykktar.
2. Fundargerðir Launanefndar S.S.S. frá 20/11 og 30/11 1998 lagðar fram og samþykktar.
3. Bréf dags. 23/10 1998 frá Sýslumanninum í Keflavík varðandi tilnefningu S.S.S. í samstarfsnefnd lögreglu og sveitarfélaga. Lagt fram.
4. Bréf dags. 6/11 1998 frá Samb. ísl. sveitarfélaga varðandi lífeyrissjóðsmál. Stjórnin samþykkir að iðgjald nefndarfólks S.S.S. skuli vera 10% þ.s. iðgjald sjóðsfélaga 4% af nefndarlaunum, iðgjald S.S.S. 6% af nefndarlaunum. Iðgjöld renni í LSS nema nefndarmaður óski annars.
5. Bréf dags. 27/11 1998 frá Landgræðslunefnd varðandi stefnumótun í land-græðslu, jarðvegs- og gróðurvernd. Lagt fram.
6. Bréf dags. 12/11 1998 frá Umferðarráði þar sem óskað er eftir tilnefningu í umferðaröryggisnefnd Suðurnesja.
Aðalmaður: Skúli Skúlason
Varamaður: Guðjón Guðmundsson
7. Bréf dags. 24/11 1998 frá Ágústi Einarssyni alþingismanni ásamt svörum við fyrirspurn á Alþingi um lélegan útsendingarstyrk ljósvakamiðla á Suðurnesjum. Samþykkt að senda fyrirspyrjanda þakkarbréf og stjórnin mun fylgja málinu eftir á næstu vikum.
8. Bréf dags. 23/11 1998 frá „Bjartsýnishópnum“ þar sem óskað er eftir fjárstyrk. Samþykkt kr. 35.000.- sem tekið verður af liðnum „sérstök verkefni“.
9. Bréf dags. 25/11 1998 frá Umhverfisráðuneyti varðandi stofnun náttúrustofu í Reykjaneskjördæmi. Afgreiðslu frestað til næsta fundar.
10. Bréf dags. 28/10 1998 frá Friðjóni Einarssyni framkvæmdastjóra MOA þar sem óskað er eftir fjárstyrk vegna hönnunar og prentunar „folder“ til notkunar fyrir stofnanir og sveitarfélög á Suðurnesjum. Stjórnin samþykkir kr. 250.000.- sem tekið verður af liðnum „sérstök verkefni“.
11. Bréf dags. 24/11 1998 frá allsherjarnefnd Alþingis ásamt tillögu til þings-ályktunar um stefnu í byggðamálum fyrir árin 1998-2001, 230. mál. Formanni og framkvæmdastjóra falið að koma með drög að umsögn fyrir næsta fund.
12. Bréf dags. 20/11 1998 frá sérnefnd Alþingis ásamt frumvarpi til stjórn-skipunarlaga 254. mál (um kjördæmabreytingu).
Stjórnin samþykkir að halda sambandsfund í byrjun næsta árs. Formanni og framkvæmdastjóra falið að rita bréf til sérnefndar í anda umræðna á fundinum.
13. Fjárhagsáætlanir sameiginlega rekinna stofnana sveitarfélaganna á Suður-nesjum. Síðari umræða og afgreiðsla.
Tillögur fjárhagsnefndar S.S.S. að fjárhagsáætlunum sameiginlega rekinna stofnana fyrir árið 1999 samþykktar. Fundargerðir fjárhagsnefndar 150.-157. fundar samþykktar.
14. Sameiginleg mál.
Lögð fram lög um almenningsbókasöfn.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18.15.