482. fundur SSS 20. nóvember 2000
Árið 2000, er fundur haldinn í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum fimmtudaginn 20. nóvember 2000 kl. 17.30.
Mætt eru: Skúli Þ. Skúlason, Sigurður Jónsson, Óskar Gunnarsson, Hallgrímur Bogason, Þóra Bragadóttir og Jóhanna M. Einarsdóttir ritari.
Dagskrá:
1. Fjárhagsáætlanir sameiginlega rekinna stofnana sveitarfélaganna á Suðurnesjum fyrir árið 2001. Síðari umræða og afgreiðsla. Tillögur fjárhagsnefndar S.S.S. samþykktar og vísað til sveitarfélaganna til samþykktar. Fundargerðir fjárhagsnefndar S.S.S. nr. 170-175 samþykktar.
2. Fundur um ný lög um mat á umhverfisáhrifum tóku gildi 6. júní 2000 og í október síðastliðnum tók gildi ný reglugerð um mat á umhverfisáhrifum. Fundurinn verður haldinn í Eldborg fimmtudaginn 23. nóvember kl.14.
3. Fyrirhugaður fundur um kostnað vegna þjónustu við fatlaða 27/11 kl. 16.00 í Hafnarfirði. Sigurður Jónsson mun sitja fundinn.
4. Sameiginleg mál.
Engin bókuð mál undir þessum lið.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17.50