576. fundur SSS 17. október 2007
Árið 2007, er fundur haldinn í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum miðvikudaginn 17. október kl. 10.00 að Iðavöllum 12b, Reykjanesbæ.
Mætt eru: Steinþór Jónsson, Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, Óskar Gunnarsson, Oddný Harðardóttir, Birgir Örn Ólafsson og Guðjón Guðmundsson framkvæmdastjóri.
Dagskrá:
1. Fundargerðir Þjónustuhóps aldraðra frá 27/8 og 19/9 2007, lagðar fram og samþykktar.
2. Fundargerðir Menningarráðs Reykjaness frá 20/9 og 4/10, lagðar fram.
3. Bréf dags. 30/8 frá Þroskahjálp á Suðurnesjum ásamt beiðni um fjárframlag frá sveitarfélögunum. Stjórnin tekur jákvætt í erindið og vísað til gerðar fjárhagsáætlunar.
4. Bréf dags. 10/9 um málefni geðfatlaðra á Suðurnesjum. Stjórnin tekur jákvætt í erindið og vísað til gerðar fjárhagsáætlunar.
5. Tilnefning S.S.S. í stjórn í Háskólasetur Suðurnesja í Sandgerði. Ákveðið að formenn SSS hverju sinni sitji í stjórn Háskólaseturs Suðurnesja.
6. Samþykktir aðalfundar SSA, Vopnafirði 21. – 22. sept. 2007. Lagt fram.
7. Bréf dags. 10/7 frá Tómasi J. Knútssyni, formanni Bláa hersins, (frestað frá síðasta fundi). Stjórnin tekur jákvætt í erindið, framkvæmdastjóra falið að kynna sér stöðu málsins.
8. Þingmannaheimsókn 2007, þingmenn munu koma í heimsókn 24. október, rætt um þau málefni sem ræða á við þingmenn.
9. Húsnæðismál S.S.S og H.E.S. Málið rætt.
10. Aðalfundur S.S.S 2007. Rætt um dagskrá , ályktanir og málefni fundarins. Ákveðið að fresta fundinum til 10. nóvember.
11. Sameiginleg mál.
Engin bókuð mál undir þessum lið.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11.45