592. fundur 21. október 2008
Árið 2008, er fundur haldinn í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum þriðjudaginn
21. október kl. 12.15 á bæjarskrifstofu í Sv. Garði.
Mætt eru: Garðar K. Vilhjálmsson, Oddný Harðardóttir, Óskar Gunnarsson, Birgir Örn Ólafsson, Petrína Baldursdóttir, Guðjón Guðmundsson og Jóhanna M. Einarsdóttir ritari.
Dagskrá:
1. Stjórnin skiptir með sér verkum:
Formaður: Garðar K. Vilhjálmsson, Reykjanesbæ
Varaformaður: Petrína Baldursdóttir, Grindavík
Ritari: Óskar Gunnarsson, Sandgerði
2. Aðalfundur S.S.S. Rætt um ályktanir frá aðalfundinum, ákveðið að senda ályktanirnar til þeirra aðila sem málin varða.
3. Bréf dags. 2/10 ´08 frá menntamálaráðuneytinu þar sem óskað er tilnefninga í skólanefnd Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Tilnefningum frestað til næsta fundar.
4. Bréf ódags. frá Þroskahjálp á Suðurnesjum þar sem óskað er eftir fjárframlagi til Ragnarssels. Erindinu vísað til Fjárhagsnefndar SSS.
5. Samþykktir 42. aðalfundar S.S.A. 26.-27. september 2008. Lagt fram.
6. Hugmyndir að samráðshóp sveitarfélaganna á Suðurnesjum vegna efnahagsástandsins. Á fundinn komu Árni Sigfússon, Sigurður Valur Ásbjarnarson, Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, Róbert Ragnarsson og Laufey Erlendsdóttir. Fram kom að bæjarstjórar hafa verið í nánu sambandi sín á milli og einnig er verið að virkja hópa innan sveitarfélaganna. Hvatt er til að þeir hafi samráð sín á milli og vinni saman eftir atvikum og miðli reynslu.
7. Almenningssamgöngur – Ásmundur Friðriksson verkefnastjóri kom á á fundinum og kynnti drög að samningi við Vegagerðina.
8. Sameiginleg mál.
Engin bókuð mál undir þessum lið.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 15.45.