600. fundur SSS 28. ágúst 2009
Árið 2009, er fundur haldinn í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum föstudaginn 28. ágúst kl.13.00 á Iðavöllum 12, Reykjanesbæ.
Mætt eru: Garðar K. Vilhjálmsson, Laufey Erlendsdóttir, Óskar Gunnarsson, Birgir Örn Ólafsson, Gunnar Már Gunnarsson, Guðjón Guðmundsson og Jóhanna M. Einarsdóttir ritari.
Dagskrá:
1. Árshlutareikningur SSS 01.01.09 – 30.06.09. Anna B. Geirfinnsdóttir endurskoðandi kom á fundinn og útskýrði árshlutareikninginn. Stjórn SSS samþykkir árshlutareikning SSS.
2. Tölvubréf dags. 25/6 ´09 frá Önnu G. Björnsdóttur varðandi lýðræðismál á dagskrá aðalfunda landshlutasamtaka. Ákveðið að hafa lýðræðismál á dagskrá aðalfundarins.
3. Bréf dags. 17/7 ´09 frá Sambandi ísl. Sveitarfélaga varðandi lýðræðismál í sveitarfélögum og málþing sem haldið var 19. ágúst sl. Framkvæmdastjóri sagði frá málþinginu sem hann sat.
4. Bréf dags. 21/8 ´09 frá Sv. Vogum, varðandi Reykjanes Express. Í bréfinu kemur fram að bæjarráð samþykkir samgöngukortið.
5. Bréf dags. 16/7 ´09 frá Fjórðungssambandi Vestfirðinga ásamt boði á 54. Fjórðungsþing Vestfirðinga 4. – 5. september nk.
6. Bréf dags. 3/7 ´09 frá Eyþingi ásamt tilkynningu um aðalfund Eyþings 2009
7. Bréf dags. 8/6 ´09 frá Sv. Garði þar sem tilkynnt er um nýja fulltrúa í stjórn SSS og BS.
Í stjórn SSS aðalmaður : Laufey Erlendsdóttir
varamaður: Oddný Harðardóttir
Í stjórn BS aðalmaður: Laufey Erlendsdóttir
varamaður: Brynja Kristjánsdóttir
8. Bréf dags. 3/6 ´09 frá SHÍ sem er kynningar-og upplýsingabréf Samtaka heilbrigðiseftirlitssvæða á Íslandi. Lagt fram.
9. Bréf dags. 15/6 ´09 frá Ljósanæturnefnd ásamt ósk um fjárhagslegan styrk að upphæð kr. 250.00.-. Erindinu hafnað.
10 Bréf dags. 4/8 2009 frá Allsherjarnefnd Alþingis ásamt frumvarpi til laga um kosningar til sveitarstjórna, 149.mál, persónukjör. Lagt fram.
11. Bréf dags. 24/8 ´09 frá Sjávarútvegsnefnd- og landbúnaðarnefnd Alþingis ásamt frumvarpi til laga um endurskoðun á undanþágum frá I. kafla I. viðauka við EES-samninginn, 147. mál, matvælalöggjöf, EES-reglur. Lagt fram.
12. Sameiginleg mál.
Ákveðið að halda aðalfund SSS 17. október nk.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 14.20