599. fundur SSS 29. maí 2009
Árið 2009, er fundur haldinn í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum föstudaginn 29. maí kl.08.00 á Iðavöllum 12, Reykjanesbæ.
Mætt eru: Garðar K. Vilhjálmsson, Laufey Erlendsdóttir, Óskar Gunnarsson, Birgir Örn Ólafsson, Petrína Baldursdóttir, Guðjón Guðmundsson og Jóhanna M. Einarsdóttir ritari.
Dagskrá:
1. Fundargerðir þjónustuhóps aldraðra frá 20/1 og 2/4 2009. Lagðar fram og samþykktar.
2. Bréf dags. 14/5 ´09 frá SASS þar sem tilkynnt er um ársþing SASS 2009. Lagt fram.
3. Svör sveitarstjórna varðandi stækkun Garðvangs.
a) Bréf dags. 14/4 ´09 frá Sandgerðisbæ.
b) Bréf dags. 16/4 ´09 frá Reykjanesbæ.
c) Bréf dags. 16/4 ´09 frá Sveitarf. Vogum.
d) Bréf dags.6/5 ´09 frá Sveitarf. Garði
e) Bréf dags. 6/5 ´09 frá Sveitarf. Garði.
Málið rætt.
4. Bréf dags. frá 20/4 ´09 frá Lögreglunni á Suðurnesjum varðandi lögreglusamþykktir á Suðurnesjum. Stjórnin telur það jákvætt að hafa samræmdar lögreglusamþykktir á Suðurnesjum. Framkvæmdastjóra falið að afla gagna í málinu.
5. Bréf dags. 15/4 ´09 frá iðnaðarráðuneytinu varðandi vaxtasamning fyrir Suðurnes. Stjórnin lýsir ánægju sinni með að ráðuneytið hyggst bjóða Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum svo og atvinnuþróunarfélögum til viðræðna um gerð vaxtarsamninga næsta haust þegar línur í fjárlagagerð fyrir árið 2010 eru orðnar skýrari og gerð byggðaáætlunar verður lokið.
6. Bréf dags. 29/4 ´09 frá menntamálaráðuneytinu varðandi menningarstyrki. Fjárveiting vegna ársins 2009 er 25 milljónir króna.
7. Tölvubréf dags. 27/5 frá MSS ósk um styrk varðandi árlega háskólahátíð 17. júní n.k. Stjórnin getur ekki orðið við erindinu.
8. Fisktækniskóli Íslands ehf. – Undirbúningsfélag að stofnun Fisktækniskóla. Tilnefning í stjórn 1 aðal- og varamaður.
Aðalmaður Guðjón Guðmundsson
Varamaður Berglind Kristinsdóttir
9. Lundur – Forvarnarstarf.
a) Tölvubréf dags. 22/5 ´09 Róberti Ragnarssyni.
b) Bréf dags. 14/5 frá Sandgerðisbæ.
Erindinu vísað til Fjárhagsnefndar SSS.
10. Bréf dags. 22/5 ´09 frá Sandgerðisbæ varðandi viljayfirlýsingu ríkis og sveitarfélaga um tilfærslu þjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga ásamt bókun: „Bæjarstjórn Sandgerðisbæjar beinir þeim tilmælum til Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum að á næsta aðalfundi SSS verði til umræðu tillögur hvers sveitarfélags fyrir sig í þjónustu við fatlaða“. Stjórnin tekur jákvætt í erindið.
11. Bréf dags. 27/4 ´09 frá PriceWaterhouse Coopers varðandi endurskoðunarnefnd. Lagt fram.
12 Héraðsnefnd Suðurnesja. Framkvæmdastjóri hefur móttekið stefnu í landamerkjamáli eigenda jarða í Vatnsleysustrandarhreppi gegn eigendum jarðanna Krýsuvík og Hrauns í Grindavík. Um er að ræða beitarrétt sem Héraðsnefndin eignaðist (frá sýslunefnd) á svæðinu. Stjórnin ákvað að láta ekki til sín taka í málinu.
13. Sameiginleg mál.
Rætt um samstarfið.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl.10.15