761. stjórnarfundur SSS 5. október 2020
Árið 2020, er fjarfundur haldinn í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum mánudaginn 5 okóber, kl. 8:30 í forritinu Teams.
Mætt eru: Einar Jón Pálsson, Kolbrún Jóna Pétursdóttir, Hjálmar Hallgrímsson, Ingþór Guðmundsson og Berglind Kristinsdóttir sem jafnframt ritaði fundargerð.
Einar Jón Pálsson setti fund og bauð fundarmenn velkomna á fundinn.
1 Undirbúningur aðalfundar 2020 Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir neyðarstigi almannavarna í samráði við sóttvarnalækni vegna sýkinga af völdum COVID-19. Neyðarstig tók gildi á miðnætti aðfaranótt mánudagsins 5. október samhliða hertum samkomutakmörkunum.
Í ljósi þess hefur stjórn S.S.S. ákveðið að aðalfundur S.S.S. verði haldinn rafrænt laugardaginn 10. október, kl. 10. Á dagskrá fundarins verða einungis þau mál sem koma fram í samþykktum S.S.S. þ.e.a.s.
- Skýrsla stjórnar
- Endurskoðaðir ársreikningar síðasta árs lagður fram til samþykktar.
- Stjórn sambandsins tilnefnd.
- Kosning endurskoðendafyrirtækis.
- Ákvörðun um greiðslu þóknunar til stjórnarmanna.
- Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni sem löglega eru upp borin. Erindum sem voru í áður boðaðri dagskrá er frestað. Fundurinn verður sendur út í Zoom forritinu og eru sveitarstjórnarfólk beðið um að skrá inn á fundinn svo hann sé löglegur en 2/3 sveitarstjórnarmanna verða að skrá sig svo hann teljist ályktunarbær. Framkvæmdastjóra falið að senda fundamönnum tengil á fundinn þegar nær dregur.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 8:50.