fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

819. fundur stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum

Árið 2026, er fundur haldinn í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum miðvikudaginn 14. janúar, kl. 8:00 í fundarsal Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, Skógarbraut 945, 262 Reykjanesbæ.

Mætt eru: Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Jónína Magnúsdóttir, Björn Sæbjörnsson, Sverrir Auðunsson og Berglind Kristinsdóttir sem jafnframt ritaði fundargerð.

Jónína Magnúsdóttir setti fund og bauð fundarmenn velkomna á fundinn.

Dagskrá:

  1. Fundargerð aukaaðalfundar nr. 50, dags. 9. desember 2025.
    Lagt fram.
  2. Tölvupóstur dags. 19.12.2025 frá Innviðaráðuneytinu, skipting framlaga til Sóknaráætlana landshlutanna.
    Fjárlög ársins 2026 voru samþykkt á Alþingi þann 18.12.2025. Þar með lá fyrir grunnframlög ríkisins til sóknaráætlana en þau eru 860,6 m.kr. Byggðastofnun hefur uppfært upplýsingar sem skiptiregla framlaganna hvílir á og ekki voru gerðar breytingar á reglunni. Framlög til Suðurnesja verða 107.276.104 kr. og hækka um 3,9% frá árinu 2025.
  3. Tölvupóstur dags. 16.12.2025 frá Byggðastofnun, skipting framlaga ríkisins til atvinnuráðgjafar á landsbyggðinni.
    Í frumvarpi til fjárlaga 2026 var gert ráð fyrir að framlag ríkisins til atvinnuráðgjafar á landsbyggðinni yrði samtals 204,8 m.kr. árið 2026. Í meðferð fjárlaganefndar eftir að erindi barst frá landshlutasamtökum sveitarfélaganna var framlagið hækkað um 35 m.kr. allra landshlutasamtaka. Framlag ársins 2026 verður því:

Framlag til Suðurnesja hækkar um 0,4% frá árinu 2025.

  1. Starfsáætlun atvinnu- og byggðaþróunar 2026.
    Lagt fram til kynningar.
  2. Atvinnustefna fyrir Suðurnes – drög.
    Stefna hefur verið uppfærð frá þeim drögum sem kynnt voru á aðalfundi S.S.S., sem haldinn var í október 2025.

Framkvæmdastjóra er falið að senda hana hagaðilum, þ.e.a.s. aðildarsveitarfélögum S.S.S. og Kadeco til umsagnar.

  1. Tölvupóstur dags. 8.desember 2025, frá Fjárlaganefnd Alþingis. Tillaga að tímabundnu framlagi.
    Fjárlög 2026 fela í sér 400 m.kr. tímabundið framlag til að styrkja sóknaráætlanir landshluta. Þar af er er hækkun til sóknaráætlana 120 m.kr. sjá lið 2. Því er um að ræða 280 m.kr. sem er ætlað að breyta verklagi fjárlaganefndar Alþingis varðandi einstakar styrkveitingar. Landshlutasamtök sveitarfélaga hafa tekið saman minnisblað með tillögum að útfærslum og afhent fjárlaganefnd til umsagnar.
  2. Reykjanes UNESCO Global Geopark – skýrsla stjórnar 2025.
    Lögð fram.
  3. Önnur mál.
    Fulltrúi Reykjanesbæjar sagði frá fundi Reykjanesbæjar með Vegagerðinni vegna leiðar 55.

Jafnframt ræddi stjórn um stöðu viðbyggingar við Fjölbrautaskóla Suðurnesja.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 9:05.

Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir Jónína Magnúsdóttir

Sverrir Auðunsson Björn Sæbjörnsson

Berglind Kristinsdóttir