fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

50. AÐALFUNDUR SAMBANDS SVEITARFÉLAGA Á SUÐURNESJUM

  1. AÐALFUNDUR SAMBANDS SVEITARFÉLAGA Á SUÐURNESJUM
    Haldinn þriðjudaginn 9. desember 2025
    í Hljómahöll, Hjallavegi 2, 260 Reykjanesbær
    Rétt til fundarsetu hafa kjörnir bæjarfulltrúar, framkvæmdastjórar aðildarsveitarfélaga og gestir.

Dagskrá:
Skráning fulltrúa og afhending gagna
Fundinn sóttu 30 sveitarstjórnarmenn, aðal- og varamenn.
Reykjanesbær: 11 fulltrúar
Grindavík: 5 fulltrúar
Suðurnesjabær: 8 fulltrúar
Sveitarfélagið Vogar: 6 fulltrúar

Aðrir gestir:
Magnús Stefánsson, bæjarstjóri Suðurnesjabæjar, Guðrún P. Ólafsdóttir , bæjarstjóri sveitarfélagsins Voga, Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, Berglind Kristinsdóttir framkvæmdastjóri SSS, Snjólaug K. Jakobsdóttir, SSS, Hrafnhildur Stígsdóttir, SSS.

  1. Fundarsetning
    Jónína Guðmundsdóttir, formaður stjórnar SSS, setti fundinn og bauð gesti velkomna.
    Jónína tiltók ástæðu fundar en hann er haldinn til að endurtaka talningu frá síðasta aðalfundi á samþykktum SSS og Reykjanesbæjar. Lögfræðingar Sambands íslenskra sveitarfélaga fóru yfir atkvæðagreiðslu síðasta aðalfundar og kom í ljós að hún var ekki rétt afgreidd og þarf því að endurtaka atkvæðagreiðsluna.
  2. Kosning fundarstjóra og fundarritara
    Lögð fram tillaga um að Róbert Ragnarsson verði fundarstjóri. Berglind Kristinsdóttir og Einar Jón Pálsson eru tilnefndir fundarritarar og fundarskrifari er Snjólaug Kristín Jakobsdóttir. Tillagan var samþykkt.
  3. Tillögur um breytingar á samþykktum lagðar fram
    Tillögur um breytingar á samþykktum lagðar fram.
    a) Tillaga Reykjanesbæjar á samþykktum er breyting á 5. grein verði svohljóðandi: Reykjanesbær skipar formann stjórnar en stjórn skiptir að öðru leyti með sér verkum.
    b) Tillaga SSS á samþykktum er breyting á 5.grein verði svohljóðandi. Fjölmennasta sveitarfélagið skipar formann stjórnar til 3 ára á hverju 4 ára kjörtímabili en stjórn skiptir að öðru leyti með sér verkum. Breyting á 4 grein: Sambandsfundur er ályktunarbær ef 2/3 hlutar fulltrúa eru mættir en 2/3 hlutfall greiddra atkvæða þarf til að samþykkja ályktanir. Hjáseta telst ekki þátttaka í atkvæðagreiðslu. Ályktanir sem hafa í för með sér útgjöld umfram samþykkta fjárhagsáætlun skulu þó ætíð háðar samþykki sveitarstjórna aðildarsveitarfélaganna. Heimilt er að halda aðal- og sambandsfundi í rafrænu fundarkerfi þegar það á við að mati formanns stjórnar og framkvæmdarstjóra. Breyting á 9. grein : Um breytingar á samþykktum
    Samþykktum þessum verður eingöngu breytt á aðalfundi, enda hljóti tillaga þar um samþykki minnst 3/4 hluta greiddra atkvæða. Hjáseta telst ekki þátttaka í atkvæðagreiðslu. Tillögur að breytingum á samþykktum skulu hafa borist stjórn sambandsins eigi síðar en mánuði fyrir aðalfund. Tillögur að breytingum á samþykktum skal senda út með fundardagskrá. Breyting á 11. grein: Um slit
    Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum verður ekki lagt niður nema tveir löglega boðaðir aðalfundir samþykki það með 2/3 hlutum greiddra atkvæða. Hjáseta telst ekki þátttaka í atkvæðagreiðslu.
  4. Umræður um tillögur
    Anton Guðmundsson lýsti undrun sinni á tímasetningu endurskoðunar samþykkta og taldi æskilegt að slík endurskoðun færi fram eftir kosningar. Hann lagði til að tillögu um breytingar á samþykktum SSS yrði vísað frá í heild sinni.
    Margrét Sanders tók til máls og benti á mikilvægi þess að skýrt komi fram í samþykktum að hjáseta teljist ekki greitt atkvæði. Hún lagði jafnframt áherslu á að lögfræðingar fari yfir vafaatriði, líkt og gert var. Að lokum lýsti hún ánægju sinni með að Róbert gegndi hlutverki fundarstjóra, sem óháður aðili. Að hennar mati er þó mikilvægt að fundarstjóri sé löglærður þegar taka þarf fyrir mál sem gætu krafist lögfræðilegs mats á fundum.
    Guðný Birna talaði um 10. grein, um úrsögn úr sambandinu og að alltaf sé heimilt að ganga út. Er ánægð með þessa grein.
  5. Kosning um breytingar á samþykktum og frávísunartillögu.
    Atkvæðagreiðsla vegna tillögu Reykjanesbæjar á 5. grein var felld. Með tillögunni voru 11, á móti tillögunni voru 18 og 1 sat hjá.
    Frávísunartillaga frá Antoni Guðmundssyni, Suðurnesjabæ tekin fyrir. Á móti tillögunni voru 27, 2 styðja tillöguna og 1 sat hjá. Tillagan var felld.
    Tillaga SSS á breytingum á greinum 4, 5, 9 og 11 voru samþykktar með 26 atkvæðum, 4 sátu hjá og enginn var á móti.
  6. Fundarslit
    Fleira ekki gert. fundarstjóri Jónína Magnúsdóttir óskaði öllum gleðilegra jóla og sleit fundi kl. 17:23

Snjólaug Kristín Jakobsdóttir, fundarskrifari.