fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

820. fundur stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum.

Árið 2026, er fundur haldinn í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum miðvikudaginn 11. febrúar, kl. 8:00 í fundarsal Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, Skógarbraut 945, 262 Reykjanesbæ.

Mætt eru: Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Jónína Magnúsdóttir, Guðmann Rúnar Lúðvíksson, Ásrún Kristinsdóttir og Berglind Kristinsdóttir sem jafnframt ritaði fundargerð.

Jónína Magnúsdóttir setti fund og bauð fundarmenn velkomna á fundinn.

Dagskrá:

  1. Atvinnutekjur landshluta og atvinnugreina– Þorkell Stefánsson, Byggðastofnun.
    Stjórn S.S.S. þakkar Þorkeli góða og áhugaverða kynningu.
  2. Kynning á niðurstöðu skoðunarkönnunar (ímynd Suðurnesja- áhersluverkefni Sóknaráætlunar) – Matthías Þorvaldsson, Gallup og Dagný Maggýjar S.S.S.
    Stjórn þakkar góða og áhugaverða kynningu. Framkvæmdastjóri mun senda stjórn skýrsluna. Dagný sagði frá næstu skrefum ímyndarverkefnisins en áætlað er að funda með Kadeco í næstu viku vegna samstarfs.
  3. Tölvupóstur dags, 23.janúar frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis, v. beiðni um umsögn um Samgönguáætlun 2026-2040. Mál nr. 322, https://www.althingi.is/altext/pdf/157/s/0463.pdf
    Umsögn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesja lögð fram.
  4. Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörum.
    a) Erindi dags. 27.01.2026 frá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja sent til sveitarfélaganna á Suðurnesjum.
    b) Afrit af drögum að umsögn til Umhverfis-, orku og loftlagsráðherra e.d. frá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja.
    Lagt fram til kynningar.
  5. Viðauki um samning um sóknaráætlun Suðurnesja 2025-2029.
    Stjórn S.S.S. leggur til að þessir fjármunir fari í auka úthlutun í Uppbyggingarsjóð Suðurnesja þar sem áhersla verður lögð á minjar og svo menningarviðburði er tengjast Sólmyrka.
  6. Tölvupóstur dags. 23.01.2026, frá Umhverfis-, orku- og loftlagsmála. Beiðni um stuðningsyfirlýsingu vegna umsóknar í LIEF SIP CLIMA áætlun ESB.
    Lagt fram.
  7. Fundardagskrá ársins 2026.
    Stjórn S.S.S. leggur til að vorfundur S.S.S. verði haldinn 10. apríl og aðalfundur S.S.S. þann 5. september. Framkvæmdastjóra falið að vinna málið áfram.
  8. Önnur mál.
    Tölvupóstur frá Reykjanesbæ, dags.5. febrúar 2026 varðandi breytingar á skipan fulltrúa í bæjarstjórn og ráðum. Á fundi bæjarstjórnar þann 3. febrúar voru samþykktar eftirfarandi breytingar.

Stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum:
• Bjarni Páll Tryggvason (B) fer út sem varamaður úr stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum.
• Díana Hilmarsdóttir kemur inn sem varamaður.

Farsældarráð Suðurnesja:
• Sverrir Bermann Magnússon (S) fer út sem Farsældarráði Suðurnesja.
• Sigurrós Antonsdóttir kemur inn í hans stað.

Stjórnin ræddi einnig drög að atvinnustefnu S.S.S. og ákveðið var í framhaldi að kalla til vinnuhóp hagaðila til að fara yfir innkomnar ábendingar, svo hægt sé að leggja lokahönd á stefnuna. Framkvæmdastjóra falið að vinna málið áfram.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:16.

Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir Jónína Magnúsdóttir

Ásrún Kristinsdóttir Guðmann Rúnar Lúðvíksson

Berglind Kristinsdóttir