SSS fær nýtt útlit
Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum hefur fengið nýtt og uppfært útlit sem unnið var af markaðsstofunni Sahara þar sem áhersla er lögð á samfélag, sjálfbærni og samvinnu sem saman mynda SSS.
Markmiðið er að kynna betur fjölbreytta og ört stækkandi starfsemi sambandsins sem snýr m.a. að íbúaþróun, ferðaþjónustu, atvinnuþróun, mennta- og menningarmálum, samgöngum og umhverfismálum auk þess sem SSS er samráðsvettvangur og rödd svæðisins út á við.
Undir SSS heyra Markaðsstofa Reykjaness, Reykjanes UNESCO Global Geopark, Heklan, atvinnuþróunarfélag Suðurnesja og Uppbyggingarsjóður Suðurnesja.
Samfélag
- Við vinnum að hagsmunamálum íbúa á Suðurnesjum
- Okkar markmið er að stuðla að jákvæðri þróun menntunar, menningar og atvinnulífs
- Við stuðlum að uppbyggingu innviða og grunnþjónustu við samfélagið
Sjálfbærni
- Við viljum að Suðurnes fái að vaxa og dafna á sjálfbæran hátt
- samfélagslega, umhverfislega og efnahagslega
- Við viljum sterk sveitarfélög sem geta veitt íbúum sem jafnasta þjónustu á grunni lýðræðislegrar stjórnsýslu
Samvinna
- Við erum hagsmunasamtök sveitarfélaga á Suðurnesjum, rödd þeirra og málsvari
- Við erum vettvangur fyrir samstarf og samráð allra þeirra sem vilja efla landshlutann
- Við vinnum að sameiginlegri framtíðarsýn fyrir Suðurnes og samþættingu áætlana