fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

SSS tekur þátt í evrópska FoodPact-verkefninu

Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum (SSS) er samstarfsaðili í evrópska Erasmus+ verkefninu FoodPact, þriggja ára samstarfsverkefni sem hefur það að markmiði að efla sjálfbærni, færni og samkeppnishæfni innan matvæla- og framleiðslugreina í Evrópu.

Verkefnið er leitt af Viðskiptaráði Reus-borgar á Spáni og fór upphafsfundur þess fram þar um miðjan maí 2026. Þar komu saman fulltrúar viðskiptaráða, opinberra stofnana, fræðsluaðila og sérfræðinga á sviði sjálfbærni til að hefja samstarfið.

Markmið verkefnisins er að styðja lítil og meðalstór fyrirtæki í matvæla- og framleiðslugreinum við að mæta sívaxandi kröfum um sjálfbærni og styrkja þannig samkeppnishæfni þeirra og framtíðarþol.

Áhrif FoodPact á Suðurnesjum

Á Suðurnesjum starfa öflug sjávarútvegs- og matvælafyrirtæki auk fjölmargra lítilla og meðalstórra fyrirtækja sem starfa á alþjóðlegum mörkuðum. Kröfur um sjálfbærni, vottanir og umhverfisábyrgð verða sífellt umfangsmeiri og getur reynst krefjandi fyrir smærri fyrirtæki að fylgja þeim eftir samhliða daglegum rekstri.

FoodPact miðar að því að styðja fyrirtæki í þessari vegferð með þróun hagnýtra verkfæra til að meta og efla sjálfbærni, markvissri færniuppbyggingu fyrir stjórnendur og starfsfólk og auknu samstarfi milli atvinnulífs og fræðslu.

Samstarfsaðilar SSS í verkefninu eru Fisktækniskóli Íslands og GeoCamp Iceland. Fisktækniskólinn leggur til sérþekkingu á sviði starfs- og fullorðinsfræðslu í sjávarútvegi og matvælavinnslu, en GeoCamp Iceland kemur að verkefninu með reynslu á sviði sjálfbærni, nýsköpunar og fræðslu.

Samstarf atvinnulífs og fræðslu

Einn af lykilþáttum verkefnisins er uppbygging svæðisbundinna samstarfsvettvanga um menntun og sjálfbærni innan matvælagreina (Community Food Education Hubs). Markmið þeirra er að styrkja tengsl atvinnulífs og fræðslu og skapa markvissar leiðir til uppbyggingar færni, vottana og nýsköpunar.

Með þróun þessara vettvanga skapast tækifæri til samlegðaráhrifa við þau fjölmörgu uppbyggingarverkefni sem þegar eru í gangi á Suðurnesjum. Þar má meðal annars nefna verkefnið Grindavík – saman í sókn, þar sem lögð er áhersla á að styðja við lítil og meðalstór fyrirtæki og frumkvöðla með áherslu á sjálfbærni, nýsköpun og framtíðaruppbyggingu atvinnulífs.

Með þátttöku í FoodPact fá Suðurnesin tækifæri til að taka virkan þátt í evrópsku samstarfi um sjálfbæra matvælaframleiðslu og styrkja um leið þróun svæðisins með áherslu á efnahagslega seiglu, ábyrga nýtingu auðlinda og langtíma samkeppnishæfni fyrirtækja.

Um verkefnið

FoodPact – Forward-Looking Partnership for Advancing Sustainable Transformation in the Agri-Food Sector er 36 mánaða verkefni sem styrkt er af Erasmus+ áætlun Evrópusambandsins (samningsnúmer 101259759).

Verkefnið sameinar tíu samstarfsaðila víðs vegar að úr Evrópu með það að markmiði að efla sjálfbærni, færni og hæfni lítilla og meðalstórra fyrirtækja í matvæla- og framleiðslugreinum. Heildarframlag Erasmus+ til verkefnisins nemur 812.651 evrum.