Starfslaunasjóður sjálfstætt starfandi fræðimanna
Starfslaunasjóður sjálfstætt starfandi fræðimanna auglýsir lausa til umsóknar styrki til að vinna að ritun fræðirita og –greina, handbóka, orðabóka og viðamikils upplýsingaefnis á íslensku í ýmsu formi.
Meginhlutverk sjóðsins er að launa starfsemi þeirra fræðimanna sem starfa sjálfstætt í sinni fræðigrein.
Rétt til að sækja um starfslaun úr sjóðnum hafa höfundar fræðirita, handbóka, orðabóka og viðamikils upplýsingaefnis á íslensku í ýmsu formi.
Næsti umsóknarfrestur er fimmtudaginn 25. mars 2021 kl. 15:00.