fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Opnað fyrir umsóknir í Startup Landið 2026

Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir í Startup Landið 2026, hraðal fyrir frumkvöðla og sprotafyrirtæki á landsbyggðinni. Verkefnið er samstarfsverkefni landshlutasamtaka og atvinnuþróunarfélaga um allt land og gefur þátttakendum tækifæri til að þróa hugmyndir sínar áfram með aðstoð sérfræðinga, leiðbeinenda og öflugs tengslanets.

Á Suðurnesjum er það Heklan atvinnuþróunarfélag Suðurnesja sem styður við frumkvöðla og hvetur einstaklinga, teymi og fyrirtæki með nýjar hugmyndir til að nýta sér þetta tækifæri.

Fyrir frumkvöðla á öllum stigum

Startup Landið er ætlað einstaklingum og teymum sem eru með viðskiptahugmynd á frumstigi sem og fyrirtækjum sem vilja þróa nýjar vörur, þjónustu eða lausnir. Markmið verkefnisins er að efla nýsköpun á landsbyggðinni og styðja við uppbyggingu öflugra fyrirtækja um allt land.

Þátttakendur fá aðgang að fræðslu, vinnustofum, leiðsögn sérfræðinga og reynslumikilla frumkvöðla auk þess að byggja upp verðmætt tengslanet með öðrum þátttakendum víðs vegar af landinu.

„Okkur finnst mikilvægt að vekja athygli á nýsköpun á landsbyggðinni og um leið gera okkar þjónustu sýnilegri en við veitum ráðgjöf til sprota og frumkvöðla um land allt. Frumkvöðlar á Suðurnesjum geta fengið stuðning og ráðgjöf í heimabyggð hjá okkur og það er líka styrkur fyrir þá að kynnast frumkvöðlum annars staðar af landinu og deila þekkingu.

Þá er afar jákvætt að landshlutasamtökin eru farin að starfa saman að nýsköpun á ýmsum sviðum en við höfum auk Startup Landið verið með fræðsluráð fyrir frumkvöðla undir heitinu Forvitnir frumkvöðlar og vinnum að því að gera upplýsingar fyrir frumkvöðla á landsbyggðinni aðgengilegri,“ segir Dagný Maggýjar, verkefnastjóri hjá Heklunni atvinnuþróunarfélagi Suðurnesja.

Markviss leið að næstu skrefum

Startup Landið fer fram dagana 24. september til 5. nóvember 2026 og er að mestu leyti haldið á netinu. Því geta þátttakendur tekið þátt óháð staðsetningu og samhliða vinnu eða námi.

Í gegnum verkefnið vinna þátttakendur markvisst að þróun hugmynda sinna, mótun viðskiptamódels, markaðsgreiningu og undirbúningi fyrir næstu skref. Að loknu verkefni hafa þátttakendur styrkt grunn sinn til að koma hugmyndum sínum á framfæri, sækja fjármögnun eða hefja frekari uppbyggingu fyrirtækis.

Umsóknarfrestur til 1. september

Frumkvöðlar, sprotafyrirtæki og önnur nýsköpunarteymi á Suðurnesjum eru hvött til að kynna sér verkefnið og sækja um þátttöku.

Umsóknarfrestur er til 1. september 2026.

Nánari upplýsingar veitir:

Dagný Maggýjar, verkefnastjóri hjá SSS og Heklunni atvinnuþróunarfélagi Suðurnesja
dagny@sss.is

Umsóknareyðublað má finna hér.