Þekkir þú menningarfrumkvöðul?
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um Eyrarrósina 2025 sem veitt verður í 19. sinn nú í vor.
Eyrarrósarhafinn hlýtur 2,5 milljón króna peningaverðlaun, framleitt verður sérstakt myndband um verkefnið og því gefið kostur á að standa að viðburði á aðaldagskrá Listahátíðar í Reykjavík 2026. Viðburðurinn getur annað hvort farið fram í heimabyggð eða öðru byggðarlagi.
Markmið Eyrarrósarinnar er að beina sjónum að og hvetja til menningarlegrar fjölbreytni, nýsköpunar og uppbyggingar á sviði lista og menningar. Eyrarrósin er viðurkenning sem veitt er framúrskarandi menningarverkefni í landsbyggðunum. Horft er til þess að verkefnið hafi fest sig í sessi, verið starfrækt í yfir þrjú ár og hafi áhrif á menningarlíf á sínu landssvæði.
Líkt og síðustu þrjú skipti verða jafnframt veitt hvatningarverðlaun. Þrenn verkefni geta hlotið þann heiður og er þá horft til nýlegra verkefna og jafnvel verkefna sem enn eru í þróun, sem sýna faglegan metnað bæði í rekstri og listrænni sýn. Hver hvatningarverðlaun eru 750 þúsund krónur.
Verkefnin sem hlotið hafa Eyrarrósina eru af afar fjölbreyttum toga. Menningarstarf í Alþýðuhúsinu á Siglufirði hlaut Eyrarrósina við síðustu afhendingu, sem var árið 2023, en meðal fyrri verðlaunahafa má nefna Handbendi á Hvammstanga, Bræðsluna á Borgarfirði eystra, Skaftfell, Frystiklefann á Rifi, Aldrei fór ég suður, Ferska vinda í Garði, List í ljósi á Seyðisfirði og Skjaldborg á Patreksfirði.
Umsóknarfrestur um Eyrarrósina og hvatningarverðlaun Eyrarrósarinnar er til kl. 16:00 mánudaginn 24. mars.
Listahátíð í Reykjavík, Byggðastofnun og Icelandair standa að Eyrrósinni en verndari Eyrarrósarinnar í ár er hr. Björn Skúlason, maki forseta Íslands. Allar nánari upplýsingar um fyrirkomulag Eyrarrósarinnar og umsóknareyðublað má finna á vef Listahátíðar: www.listahatid.is/eyrarrosin
Hægt er að panta tíma hjá ráðgjöfum SSS við umsóknarskrif.