fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Vinnustofa um framtíð Suðurnesja

Áhugasamir sóttu vinnustofu um nýja sóknaráætlun Suðurnesja 2025-2029 í Hljómahöll sl. föstudag og áttu gott samtal um þau verkefni sem skulu vera í forgrunni á Suðurnesjum næstu fimm árin.

Sóknaráætlanir landsluta eru unnar á fimm ára fresti og hófst vinna við nýja sóknaráætlun á síðast ári og er stýrt af VSÓ. Fundað hefur verið með rýnihópum en áætlað er að drög fari í samráðsgátt í lok febrúar.

Markmið Sóknaráætlunar er að einfalda samskipti ríkis og sveitarfélaga og tryggja gagnsæi við úthlutun og umsýslu opinberra fjármuna. Þetta verklag og það traust sem ríkisvaldið sýnir með þessu fyrirkomulagi er ákaflega valdeflandi og tilmikillar fyrirmyndar.

Þetta byggir á þeirri framtíðarsýn að þeir fjármunir sem Alþingi ráðstafar hverju sinni af fjárlögum til verkefna í einstökum landshlutum á sviði atvinnumála, byggða- og samfélagsþróunar byggi á sóknaráætlunun hvers landshluta og renni um einn farveg á grundvelli samnings til miðlægs aðila í hverjum landshluta. Til þess að svo megi verða þarf að forgangsraða verkefnum og áherslum hvers landshluta í gegnum sóknaráætlanir.

Sóknaráætlun tekur mið af helstu stefnumörkun ríkisstjórnar og heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.