fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Framkvæmdir við einstakar aðstæður

Framkvæmdir við útsýnispall við Brimketil á Reykjanesi standa enn yfir en stefnt er að því að ljúka þeim í maí.

Aðstæður hafa verið erfiðar í vetur eins og sjá má í eftirfarandi myndbandi sem Ari Þórólfur starfsmaður ÍAV tók með dróna yfir framkvæmdasvæðinu en ÍAV hafa séð um framkvæmdirnar.

„Eins og sjá má á þessu myndbandi hafa jaxlarnir hjá ÍAV þurft að vinna við einstakar aðstæður. Pusið gengur reglulega yfir þá og hefur gert í allan vetur. Við bíðum spennt eftir því að allt verði klárt,“ segir Eggert Sólberg Jónsson hjá Reykjanes Geopark á fb síðu ferðaþjóna á Reykjanesi.