fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Byggðarannsóknasjóður auglýsir eftir umsóknum

 Byggðarannsóknasjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki til rannsókna á sviði byggðamála. en sjóðurinn hefur þann tilgang að efla rannsóknir og bæta þannig þekkingargrunn fyrir stefnumótun og aðgerðir í byggðamálum.

Í umsóknum skal meðal annars koma fram greinargóð lýsing á rannsókninni, markmiðum hennar, ávinningi, nýnæmi og hvernig hún styður við tilgang sjóðsins. Við mat á umsóknum er meðal annars litið til hvernig verkefnið styður við markmið sjóðsins, vísindalegs- og hagnýts gildis þess og hæfni umsækjenda.

Umsækjendur geta verið einstaklingar, fyrirtæki, rannsókna-, þróunar- og háskólastofnanir eða aðrir lögaðilar.

Styrkir verða veittir til eins árs. Sjóðurinn hefur allt að 10 milljónir króna til úthlutunar. Samkvæmt reglum sjóðsins er miðað við að styrkirnir séu ekki færri en þrír og ekki fleiri en fimm í hvert sinn.

Nánari upplýsingar veitir Sigríður K. Þorgrímsdóttir.

Netfang: sigga@byggdastofnun.is. Sími 545 8600.

Umsóknir þurfa að berast byggðastofnun fyrir miðnætti fimmtudaginn 15. mars 2018.