Suðurnesin sem drifkraftur vaxtar – tækifæri og sameiginleg framtíðarsýn
Atvinnuuppbygging, fjárfestingar og framtíð Suðurnesja voru í brennidepli á ráðstefnunni „Suðurnesin sem drifkraftur vaxtar“, sem haldin var í Hljómahöll í Reykjanesbæ 14. október. Kadeco stóð fyrir ráðstefnunni í samstarfi við Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum og Samtök atvinnurekenda á Reykjanesi.
Ráðstefnan leiddi saman fulltrúa atvinnulífs, sveitarfélaga og stjórnmála til samtals um tækifæri svæðisins og hlutverk þess í vexti íslensks efnahagslífs.
Svæði sem kann að byrja upp á nýtt
Berglind Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri SSS, flutti opnunarávarp þar sem hún rakti hvernig Suðurnesin hafa ítrekað tekist á við stórar breytingar og skapað ný tækifæri á grunni þekkingar, innviða og samstarfs.
Hún rifjaði upp brottför varnarliðsins árið 2006 og þá óvissu sem henni fylgdi fyrir fjölskyldur og atvinnulíf. Með sameiginlegu átaki sveitarfélaga, ríkis, fyrirtækja og íbúa hefði orðið til ný framtíð á Ásbrú, þar sem nú væri öflugt íbúa-, atvinnu- og menntasamfélag.
Berglind lagði áherslu á mannauð svæðisins. Á Suðurnesjum byggi ungt og fjölbreytt samfélag sem hefði bæði vilja og getu til að byggja upp framtíðina. Verkþekking og alþjóðleg tengsl væru jafnframt mikilvægur grunnur að áframhaldandi þróun.
Vöxtur kallar á innviði og fjölbreytt störf
Í ávarpinu kom fram að íbúum Suðurnesja hefði fjölgað um rúmlega tíu þúsund frá árinu 2013 og að sveitarfélögin gerðu ráð fyrir 40–44 þúsund íbúum árið 2040. Sá vöxtur kallaði á öfluga innviði og fjölbreytt atvinnutækifæri.
Berglind benti á að sveitarfélögin hefðu mótað sameiginlega sýn á helstu þróunarsvæði Suðurnesja. Það skapaði skýrari grundvöll fyrir samtal við fyrirtæki og fjárfesta sem vildu byggja upp starfsemi og skapa störf. Þá dró hún fram auðlindagarðana í Svartsengi og á Reykjanesi sem dæmi um hvernig nýta mætti eina auðlind til fjölbreyttrar verðmætasköpunar.
Í lok ávarpsins hvatti hún ráðstefnugesti til að beina sjónum að framkvæmdum og næstu skrefum:
„Suðurnesin bíða ekki eftir framtíðinni. Við byggjum hana.“
Fjárfestingar og uppbygging
Auk Berglindar fluttu erindi Pálmi Freyr Randversson, framkvæmdastjóri Kadeco, Mark O’Connell, stofnandi og stjórnarformaður OCO Global, og Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia.
O’Connell fjallaði um samkeppnisstöðu Suðurnesja gagnvart erlendum fjárfestum. Hann taldi svæðið hafa sterkan grunn en leggja þyrfti meiri áherslu á að koma kostum þess skýrt á framfæri við viðeigandi markhópa.
Í umfjöllun um ráðstefnuna kom einnig fram að stór framkvæmdaáform hjá Verne, Samherja og Bláa lóninu væru ýmist komin í framkvæmd eða framundan. Þau eru áþreifanleg dæmi um vöxt atvinnulífsins á svæðinu.
Í pallborði sátu Sigríður Margrét Oddsdóttir, Páll Erland, Jón Kjartan Jónsson, Styrmir Hafliðason og Halla Hrund Logadóttir. Bergur Ebbi stýrði dagskránni.
Að ráðstefnunni lokinni var boðið upp á veitingar í tilefni af 20 ára afmæli Kadeco.
Nánari umfjöllun og myndir á vef Kadeco.














