fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Breyting á svæðisskipulagi Suðurnesja – Auglýsing

Lögð er fram til kynningar verkefnislýsing vegna breytinga á svæðisskipulagi Suðurnesja 2008-2024 sbr. 2. mgr. 23. gr. skipulagslaga nr.
123/2010.

Breytingar felast í breyttri afmörkun vatnsverndarsvæða í Reykjanesbæ og nýs flugbrautarkerfis Keflavíkurflugvallar.
Verkefnislýsing er aðgengileg hér, á skrifstofu SSS, Skógarbraut 945, 262 Reykjanesbær, á vefsíðu heklan.is/svaedisskipulag og á vefsíðum sveitarfélaga á Suðurnesjum.
Athugasemdum og ábendingum varðandi lýsinguna má skila til skrifstofu SSS eða ánetfangið sss@heklan.is. Æskilegt er að þær berist fyrir 20. ágúst 2018.

Samvinnunefnd um svæðisskipulag Suðurnesja
Ólafur Þór Ólafsson, formaður