Rannsóknarsjóður
Fyrir hverja?
Vísindafólk og nemendur í rannsóknatengdu námi við íslenska háskóla, rannsóknastofnanir og fyrirtæki.
Til hvers?
Veittur er styrkur til skilgreindra rannsóknaverkefna vísindafólks og rannsóknanema í grunnrannsóknum og hagnýtum rannsóknum.
- Opið fyrir umsóknir:
- Innskráning
- Leiðbeiningar
Umsóknarfrestur er til 15. júní 2018, kl. 16:00EN
Hvert er markmiðið?
Rannsóknasjóður er opinn samkeppnissjóður sem veitir styrki samkvæmt almennum áherslum Vísinda- og tækniráðs og á grundvelli faglegs mats á gæðum rannsóknarverkefna. Sjóðurinn starfar samkvæmt lögum um opinberan stuðning við vísindarannsóknir nr. 3 frá 2003 með áorðnum breytingum.