fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

547. fundur SSS 11. október 2005

Árið 2005, er fundur haldinn í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum þriðjudaginn 11. október  kl. 08.00 á Fitjum.

 

            Mætt eru:  Böðvar Jónsson, Jón Gunnarsson, Sigurður Jónsson, Hörður Guðbrandsson,  Óskar Gunnarsson og Guðjón Guðmundsson framkv.stj.

 

Dagskrá:

 

1.         Fundargerð Starfskjaranefndar frá 12/9 ´05. Lögð fram og samþykkt.

2.         Fundargerð Samgöngunefndar frá 20/4, 17/8 og 20/9 ´05. Lagðar fram.

3.         Bréf dags. 12/9 ´05 frá SSV – Aðalfundur SSV. Lagt fram.

4.         Bréf dags. 23/9 ´05 frá Sveitarfélaginu Garði varðandi aðgerðir til fækkunar sílamáfs.  Afgreiðslu frestað þar sem verið er að fjalla um málið   í sveitarfélögunum.

5.         Bréf dags. 6/10 ´05 frá Sveitarfélaginu Garði ásamt erindi smábátaútgerðar. Stjórnin telur eðlilegt að málið verði afgreitt hjá hverju sveitarfélagi fyrir sig. 

6.         Bréf dags. 27/9 ´05 frá SSA ásamt samþykktum aðalfundar SSA. Lagt fram.

7.         Bréf dags. 3/10 ´05 frá Fjórðungsþingi Vestfrðinga ásamt ályktunum aðalfundar. Lagt fram.

8.         Bréf dags. 30/9 ´05 frá Landgræðslu ríkisins þar sem óskað er eftir fjárstyrk að upphæð 1.5 millj..  Erindinu vísað til Fjárhagsnefndar SSS.

9.         Tölvu-og  hugbúnaðarmál hjá SSS.  Framkvmdastjóra falið að vinna að málinu.

10.       Drög að fjárhagsáætlunum SSS fyrir 2006. Framkvæmdastjóri kynnti drög að fjárhagsáætlun SSS.

11.       Aðalfundur SSS 2005. Rætt um efnistök ofl. á aðalfundinum.

12.       Kjördæmisvika – Suðurnes 31/10 og 1/11 ´05  rætt um fyrirkomulag heimsóknarinnar.

13.       Niðurstaða kosninga um sameiningu sveitarfélaga. Rætt um málið

14.       Sameiginleg mál.

Engin bókuð mál undir þessum lið.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10.00