546. fundur SSS 31. ágúst 2005
Árið 2005, er fundur haldinn í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum miðvikudaginn 31. ágúst kl. 08.00 á Fitjum.
Mætt eru: Böðvar Jónsson, Jón Gunnarsson, Sigurður Jónsson, Hörður Guðbrandsson, Óskar Gunnarsson og Guðjón Guðmundsson framkv.stj.
Dagskrá:
1. Árshlutauppgjör 1/1 – 30/6 2005 fyrir SSS ásamt drögum að skýrslu stjórnar.
Árshlutareikningurinn og skýrslan samþykkt og reikningar undirritaðir.
2. Bréf dags. 23/8 ´05 frá Náttúrustofu Reykjaness. Þar er boðað til fundar um aðgerðir til fækkunar sílamáfs á Miðnesheiði.
3. Sameiginleg mál. Framkvæmdastjóri upplýsti að framkvæmdastjóri HSS er að undirbúa fundi með sveitarstjórnum í byrjun október.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 8:30