548. fundur SSS 25. október 2005
Árið 2005, er fundur haldinn í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum þriðjudaginn 25 október kl. 08.00 á Fitjum.
Mætt eru: Böðvar Jónsson, Jón Gunnarsson, Sigurður Jónsson, Hörður Guðbrandsson, Óskar Gunnarsson, Guðjón Guðmundsson framkv.stj. og Jóhanna M. Einarsdóttir ritari.
Dagskrá:
1. Fjárhagsáætlanir sameiginlega rekinna stofnana sveitarfélaganna á Suðurnesjum fyrir árið 2006 ásamt fundargerðum fjárhagsnefndar no. 206 – 212. Jóhanna Reynisdóttir formaður Fjárhagsnefndar SSS kynnti drög að fjárhagsáætlunum. Stjórnin samþykkir fjárhagsáætlanirnar og vísar þeim til afgreiðslu sveitarfélganna.
2. Fundargerð Þjónustuhóps aldraðra frá 27/10 ´05. Lögð fram og samþykkt.
3. Bréf dags. 11/10 ´05 frá SASS – tilkynning um aðalfund SASS 25. og 26. nóvemer 2006. Lagt fram.
4. Bréf dags. 6/10 ´05 frá iðnaðar og viðskiptaráðuneytinu varðandi tillögu til þingsályktunar um stefnumótndi byggðaáætlun fyrir 2006 – 2009. Lagt fram.
5. Aðalfundur SSS 2005. (drög að dagskrá og fl.) Rætt um dagskrá, ályktanir ofl.
6. Kjördæmavika – Suðurnes 31/10 og 1/11 ´05. Dagskráin lögð fram.
7. Sameiginleg mál.
Stjórnin samþykkir að nefnd um framtíð samstarfs sveitarfélaganna á Suðurnesjum taki til starfa á ný og skili niðurstöðum á aðalfundi sambandsins í september 2006.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10.00