fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Lántökugjöld Byggðastofnunar lækkuð

Stjórn Byggðastofnunar samþykkti á fundi sínum þann 28. ágúst síðastliðinn að lækka lántökugjöld úr 1,8% í 1,2% í öllum lánaflokkum að undanskildum lánaflokknum lán til viðkvæmra byggðarlaga þar sem gjaldið verður 0,5%. Breyting á gjaldskrá hefur þegar tekið gildi.

Stofnunin vill með þessum hætti koma til móts við lántakendur og draga úr kostnaði við lántöku, sér í lagi í þeim byggðarlögum sem viðkvæmust eru.