57. fundur Svæðisskipulagsnefndar Suðurnesja
57. fundur Svæðisskipulagsnefndar Suðurnesja haldinn fimmtudaginn 12. mars 2026, kl. 16:00. Fundurinn er haldinn í fundarsal Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, Skógarbraut 945, 262 Reykjanesbæ.
Forföll boðuðu: Björn Ingi Edvardsson, Andri Rúnar Sigurðsson og Lilja Sigmarsdóttir
Eysteinn Eyjólfsson formaður setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna.
Dagskrá:
- Tillaga að endurskoðuðu Svæðisskipulagi Suðurnesja.
Svæðisskipulagsnefnd Suðurnesja samþykkir hér með Svæðisskipulag Suðurnesja 2024–2040, sem samanstendur af skipulagsgreinargerð, umhverfismatsskýrslu og vatnsverndaruppdrætti, í samræmi við 1. mgr. 25. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Tillaga að svæðisskipulagi var auglýst samkvæmt 24. gr. skipulagslaga og var til kynningar á auglýsingartíma frá 4.12.2025 til 30.1.2026. Á auglýsingartíma bárust 16 umsagnir frá umsagnaraðilum. Tekið hefur verið tillit til þeirra eftir því sem við á og gerðar breytingar á skipulagstillögunni eftir atvikum. Svæðisskipulagsnefnd hefur unnið samantekt á viðbrögðum við umsögnum og fylgir hún skipulagsgögnum. Að mati svæðisskipulagsnefndar uppfyllir uppfærð skipulagstillaga markmið skipulagslaga og þau markmið sem sett hafa verið fyrir svæðisskipulag Suðurnesja til ársins 2040.
Svæðisskipulagsnefnd Suðurnesja felur ritara nefndarinnar að senda afgreiðslu nefndarinnar og skipulagsgögn til samþykktar hjá sveitarstjórnum, Landhelgisgæslunni f.h. utanríkisráðuneytis og Skipulagsnefnd Keflavíkurflugvallar í samræmi 2. mgr. 25. gr. skipulagslaga nr. 123/2010
2.Tölvupóstur dags, 04.03.2026 frá Skipulagsgátt, beiðni um umsögn um breytingu á aðalskipulagi og nýtt deiliskipulag Eldvarpa í Grindavík, nr. 0153/2026. https://skipulagsgatt.is/issues/2026/153
Svæðisskipulags Suðurnesja gerir ekki athugasemd við skipulags- og matslýsingu vegna breytinga á aðalskipulagi og nýtt deiliskipulag Eldvarpa í Grindavík.
3. Önnur mál.
Ekki fleiri mál færð til bókar og fundi slitið kl. 16:35.