56. fundur Svæðisskipulagsnefndar Suðurnesja
56. fundur Svæðisskipulagsnefndar Suðurnesja haldinn fimmtudaginn 26. febrúar 2026, kl. 16:00. Fundurinn er haldinn í fundarsal Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, Skógarbraut 945, 262 Reykjanesbæ.
Forföll boðuðu: Jón B. Einarsson, Kjartan Már Kjartansson, Gunnar K. Ottósson og Lilja Sigmarsdóttir
Eysteinn Eyjólfsson formaður setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna.
Dagskrá:
- Tillaga að endurskoðuðu Svæðisskipulagi Suðurnesja.
Alls bárust 16 umsagnir í Skipulagsgátt á umsagnartímanum. Eftirfarandi sendu inn umsögn:
- Fiskistofa
- Suðurnesjabær
- Ferðamálastofa
- Hafnarfjarðarkaupstaður
- Landsnet
- Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja
- Skipulagsnefnd Keflavíkurflugvallar
- Sveitarfélagið Vogar
- Landshelgisgæsla Íslands
- Veðurstofa Íslands
- Vegagerðin – Suðursvæði
- Hafrannsóknarstofnun
- Reykjanesbær
- Náttúrufræðistofnun
- Isavia
- Náttúruverndarstofnun
Svæðisskipulagsnefndin fór yfir innsendar umsagnirnar og brást við þeim eftir þörfum. Svæðisskipulagið verður uppfært í samræmi við ákvarðanir nefndarinnar og sent nefndinni til yfirlestrar tímanlega fyrir næsta fund sem haldinn verður þann 12. mars.
- Kostnaður við endurskoðun.
Lagður fram viðaukasamningur, dags. 15.12.2025, til afgreiðslu svæðisskipulagsnefndar vegna breytingar á kostnaðaráætlun ráðgjafavinnu við svæðisskipulagsgerð. Gerð er grein fyrir forsendum breytinga á umfangi vinnu og kostnaði. Áætlað er að verkefninu ljúki í apríl 2026.
Viðaukasamningur samþykktur með öllum greiddum atkvæðum.
3. Önnur mál.
Ekki fleiri mál færð til bókar og fundi slitið kl. 17:10.