fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Almyrkvi 2026 á Reykjanesi: Helstu tölur úr undirbúningi

Almyrkvinn 2026 var ekki aðeins einstakur náttúruviðburður — hann er eitt stærsta sameiginlega samfélagsverkefni sem unnið hefur verið að á Reykjanesi.

Verkefnið byggir á samvinnu opinberra aðila, atvinnulífs, frjálsra félagasamtaka og íbúa með það sameiginlega markmið að skapa örugga, vel skipulagða og eftirminnilega upplifun fyrir bæði íbúa og gesti sem heimsækja Reykjanes í tilefni almyrkvans.

Eitt stærsta samfélagsverkefni Reykjaness

Frá því undirbúningur hófst árið 2025 hefur verkefnið þróast úr undirbúningsvinnu fárra aðila yfir í umfangsmikið samfélagsverkefni þar sem sveitarfélög, stofnanir, fyrirtæki, ferðaþjónustan, skólasamfélagið, félagasamtök og íbúar hafa sameinast um að undirbúa Reykjanes fyrir almyrkvann 12. ágúst 2026.

Helstu tölur úr undirbúningi

15 mánuðiraf markvissum undirbúningi15+ stofnanir og fyrirtækií virku samstarfi
4 sveitarfélögá Reykjanesi unnu saman að verkefninu100+ einstaklingarkomu beint að undirbúningi verkefnisins
10 stýrihópsfundirauk fjölda vinnu-, samráðs- og undirbúningsfunda11 grunnskólartóku þátt í fræðsluverkefninu
11 sólar- og stjörnusjónaukarmeð sólarsíum afhentir öllum grunnskólum svæðisins5.700 sólmyrkvaglerauguafhent grunnskólabörnum og viðbragðsaðilum
7 stór sólmyrkvagleraugusett upp á safn- og áningarstöðum til fræðslu og upplifunarUm 130–140 viðbragðsaðilará vakt á almyrkvadeginum (lögregla, slökkvilið, björgunarsveitir o.fl.)
Hátt í 20 viðburðirog uppákomur haldnar víðs vegar um Reykjanes á almyrkvadeginum2 upplýsingasíðurá Visit Reykjanes (íslensku og ensku)
Rúm mínútaaf myrkri á sjálfum almyrkvadeginum, þrátt fyrir skýjahuluÞúsundir gestasóttu Reykjanes heim á almyrkvadeginum

Dagurinn sjálfur — 12. ágúst 2026

Þann 12. ágúst 2026 varð Reykjanes vettvangur eins merkasta náttúruviðburðar sem Ísland hefur upplifað í áratugi. Almyrkvi á sólu dró þúsundir gesta á svæðið og vakti athygli um allan heim. Þrátt fyrir skýjahulu sem skyggði á atburðinn upplifðu íbúar og gestir magnað myrkur í rúma mínútu.

Gestir dreifðust vel um svæðið, upplýsingaflæði gekk vel, samstarf milli aðila var öflugt og viðbragðskerfið reyndist sterkt. Þó að álagið væri mikið sýndi samfélagið á Reykjanesi hvers það er megnugt þegar allir leggjast á eitt.

Útsýnisstaðir og öryggi

  • Útsýnisstaðir, áfangastaðir og söfnunarstaðir kortlagðir og metnir með tilliti til öryggis, aðgengis, þolmarka og móttökugetu.
  • Sameiginleg umferðar- og viðbragðsáætlun unnin í samstarfi sveitarfélaga, Vegagerðarinnar, lögreglu, almannavarna og annarra viðbragðsaðila.
  • Sameiginleg kortlagning á umferð, útsýnisstöðum, þjónustu, salernum og lokunum til að styðja við örugga dreifingu gesta.

Upplýsingagjöf

8+ opinberar upplýsingaleiðir voru nýttar fyrir íbúa, fyrirtæki og gesti, þar á meðal:

  • Visit Reykjanes (IS/EN)
  • island.is
  • Ferðamálastofa
  • eclipse2026.is / solmyrkvi2026.is
  • vefir sveitarfélaganna
  • Facebook-viðburðir sveitarfélaganna

Öll sveitarfélögin á Reykjanesi settu að auki upp sérstakar upplýsingasíður og Facebook-viðburði fyrir íbúa og gesti. Mikil vinna fór í að tryggja samræmda og aðgengilega upplýsingagjöf fyrir alla markhópa.

Samfélagið allt tók þátt

Undirbúningurinn náði langt út fyrir stýrihóp verkefnisins. Hundruð hagaðila tóku þátt í undirbúningnum — þar á meðal ferðaþjónustufyrirtæki, þjónustuaðilar, landeigendur, félagasamtök, skólar, söfn, menningarstofnanir og fjölmargir íbúar sem lögðu sitt af mörkum með hugmyndum, þátttöku og undirbúningi. Að verkefninu komu meðal annars:

  • sveitarfélögin á Reykjanesi
  • lögregla, almannavarnir og viðbragðsaðilar
  • Vegagerðin, ISAVIA, HS Orka og aðrar lykilstofnanir
  • Reykjanes jarðvangur og Geocamp Iceland
  • Ferðamálastofa, Íslandsstofa og stjórnvöld
  • grunnskólar og kennarar á Suðurnesjum
  • söfn og menningarstofnanir
  • ferðaþjónustufyrirtæki
  • veitingastaðir og þjónustufyrirtæki
  • landeigendur
  • félagasamtök og íþróttafélög
  • fjölmiðlar, þar á meðal Víkurfréttir sem hafa fylgst náið með undirbúningnum
  • hundruð íbúa sem hafa tekið þátt með hugmyndum, upplýsingagjöf, viðburðum og undirbúningi