Opnað fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Suðurnesja
Opnað verður fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Suðurnesja vegna verkefna ársins 2027 þann 16. september. Umsóknarfrestur er til kl. 14 þann 21. október.
Uppbyggingarsjóður Suðurnesja styrkir menningar-, atvinnu- og nýsköpunarverkefni á Suðurnesjum. Lögráða einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög á svæðinu geta sótt um.
Umsóknir fara í gegnum umsóknargátt Rannís. Innskráning fer fram með rafrænum skilríkjum í gegnum Ísland.is. Þeir sem sækja um fyrir hönd fyrirtækis, stofnunar, félagasamtaka eða sveitarfélags eru hvattir til að ganga tímanlega úr skugga um að þeir hafi tilskilið umboð.
Umsækjendur eru hvattir til að hefja vinnuna tímanlega, kynna sér vel reglur og leiðbeiningar sjóðsins og nýta sér ráðgjöf Heklunnar og verkefnastjóra Uppbyggingarsjóðs.