Ólafía Kristín Guðmundsdóttir ráðin verkefnastjóri Ávísun á farsæld
Ólafía Kristín Guðmundsdóttir, Lóa, hefur verið ráðin í starf verkefnastjóra Ávísun á farsæld hjá Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum (SSS). Hún hefur þegar hafið störf.
Lóa er fædd og uppalin á Akureyri og er búsett í Hafnarfirði. Hún er með BA-gráðu með starfsréttindum í félagsráðgjöf frá HÍ og hefur einnig lokið námi í Farsæld barna frá HÍ og mun stunda framhald af því námi í vetur meðfram vinnu og læra Áföll barna og samþætt þjónusta. Lóa hefur víðtæka reynslu af því að starfa með börnum og fjölskyldum. Hún hefur verið skólafélagsráðgjafi á Akureyri og í Reykjanesbæ, starfaði hjá félagsmiðstöðvum Akureyrar þar sem hún tók þátt í að þróa miðstigsstarf og og nú síðast starfaði hún hjá Barna-og fjölskylduteymi hjá Velferðarsviði Reykjanesbæjar.
Í starfi sínu mun Lóa þróa nýtt verklag í samvinnu við Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ, Sveitarfélagið Vogar og Grindavíkurbæ sem og HSS til að grípa börn strax og vart verður við að þau glími við einhverja vanlíðan eða vanda og koma þeim í réttan farveg út frá lögum um samþættingu þjónustu.
„Þetta er spennandi tækifæri og ég hlakka til að takast á við þetta þróunarverkefni og þar sem ég brenn fyrir forvarnarvinnu og að snemmtæka íhlutun þá er þetta starf eins og sniðið fyrir mig þar sem ég fæ tækifæri til að þróa nýja ferla og úrræði ásamt fullt af góðu fólki segir Lóa.
Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum býður Lóu velkomna til starfa.