Byggðaþróun – styrkir til meistaranema
Byggðastofnun auglýsir styrki til meistaranema sem vinna að rannsóknartengdum lokaverkefnum á sviði byggðaþróunar. Kostur er ef verkefnin hafa skírskotun til byggðaáætlunar. Til úthlutunar er allt að 1.200.000 kr. og stefnt er að því að veita allt að fjóra styrki. Í umsókn skal koma fram greinargóð lýsing á verkefninu, markmiðum þess og hvernig það styður við byggðaþróun. Umsækjendur þurfa að stunda meistaranám við viðurkenndan háskóla.
Sjá nánar:
(Velja: Umsóknir – Styrkumsóknir – Umsókn um styrki til meistaranema 2026)
Umsóknarfrestur er til miðnættis 9. nóvember 2026.
Við mat á umsóknum er litið til eftirfarandi þátta:
– Tengsl verkefnis við markmið byggðaáætlunar
– Nýnæmi verkefnis
– Möguleikar á hagnýtingu
– Gæði umsóknar (skýr markmið, vönduð rannsóknaráætlun og hnitmiðaður texti)
Byggðastofnun hefur frá árinu 2015 veitt styrki til meistaranema sem vinna að lokaverkefnum á sviði byggðaþróunar. Á heimasíðu stofnunarinnar má sjá yfirlit verkefna sem hafa verið styrkt.
Nánari upplýsingar veitir Hanna Dóra Björnsdóttir.
Netfang hannadora@byggdastofnun.is
Sími: 455 5454