fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Suðurnesin sem drifkraftur vaxtar – taktu eftirmiðdaginn frá

Miðvikudagurinn 14. október, kl. 14-17
Hljómahöllin, Reykjanesbæ

Kadeco efnir til ráðstefnu um tækifærin á Suðurnesjum þann 14. októðber. Þar verður fjallað um markvissa uppbyggingu á svæðinu, áhrif aukinna erlendra fjárfestinga á verðmætasköpun og samkeppnishæfni Íslands í alþjóðlegu samhengi.

Meðal fyrirlesara verður Mark O’Connell stofnandi alþjóðlega ráðgjafafyrirtækisins OCO Global. Mark hefur áratuga reynslu af markaðssetningu landa og hvernig best er að laða að erlendar fjárfestingar og viðskipti. Fundarstjórn verður í höndum Bergs Ebba.

Í lok ráðstefnunnar verður boðið upp á léttar veitingar í tilefni af 20 ára afmæli Kadeco.

Ráðstefnan er haldin í samvinnu við Samtök atvinnurekenda á Reykjanesi og Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum.

Nánari dagskrá verður kynnt þegar nær dregur. Taktu daginn frá!