fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Opinn kynningarfundur um Uppbyggingarsjóð Suðurnesja í Vogum

Föstudaginn 9. október kl. 14:30 verður haldinn opinn kynningarfundur um Uppbyggingarsjóð Suðurnesja í þjónustumiðstöðinni Álfagerði í Vogum. Allir sem hafa áhuga á að sækja um styrk eru hvattir til að mæta.

Á fundinum verður farið yfir umsóknarferlið og veitt góð ráð við umsóknargerð. Gestir fá einnig að heyra af reynslu þeirra sem hafa áður fengið stuðning úr sjóðnum.

Logi Gunnarsson, verkefnastjóri hjá Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum, kynnir nýtt umsóknarumhverfi Rannís. Dagný Maggýjar, atvinnuráðgjafi hjá SSS, gefur ráð við umsóknargerð og systurnar Oktavía og Helga Ragnarsdætur hjá Minjafélagi Vatnsleysustrandar segja frá reynslu sinni af sjóðnum.

Uppbyggingarsjóður Suðurnesja styður við menningar-, atvinnu- og nýsköpunarverkefni á Suðurnesjum. Nú er opið fyrir umsóknir um styrki fyrir árið 2027 og er umsóknarfrestur til 21. október 2026.

Fundurinn fer fram í Álfagerði við Akurgerði 25 í Vogum. Gengið er inn frá Suðurgötu, til móts við leikskólann.

Heitt verður á könnunni og allir velkomnir.