Áfram unnið að uppbyggingu atvinnulífs í Grindavík
Nýverið fór fram síðasta vinnustofa verkefnisins Grindavík – saman í sókn í Bláa lóninu, þar sem fulltrúar atvinnulífs, sveitarfélags og samstarfsaðila komu saman til að ræða niðurstöður verkefnisins og næstu skref í uppbyggingu atvinnulífs í Grindavík.

Verkefnið Grindavík – saman í sókn hefur undanfarna mánuði skapað vettvang fyrir samtal og samstarf um framtíð atvinnulífs í Grindavík í kjölfar þeirra áskorana sem samfélagið hefur staðið frammi fyrir.
Í gegnum vinnustofur og samráðsfundi hafa þátttakendur greint stöðu atvinnulífsins, kortlagt tækifæri og rætt leiðir til að styrkja samstöðu, seiglu og framtíðarsýn samfélagsins.
Á lokavinnustofunni í Bláa lóninu voru helstu niðurstöður verkefnisins teknar saman og rætt um næstu skref í áframhaldandi uppbyggingu. Þar var meðal annars lögð áhersla á að efla samstarf atvinnulífs og hagsmunaaðila, styrkja samræmda sýn um framtíð atvinnulífs í Grindavík og skapa vettvang fyrir áframhaldandi samvinnu.
Verkefnið miðar að því að skapa samfellu í uppbyggingu samfélags og atvinnulífs í kjölfar hamfara. Með samstarfi, þjálfun, markaðssetningu og virkni samfélagsins er markmiðið að stuðla að sjálfbærri endurreisn, aukinni seiglu og skýrri framtíðarsýn fyrir bæinn.
Nýlega fékk verkefnið áframhaldandi styrk að upphæð 16,5 milljónir króna, sem mun styðja við næsta áfanga verkefnisins. Þar verður áfram byggt á reynslu og árangri fyrri áfanga með það að markmiði að styrkja samstöðu, auka þátttöku og efla jákvæða ímynd Grindavíkur.
Verkefnið er unnið af Íslenska ferðaklasanum í samstarfi við Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum (SSS) og Markaðsstofu Reykjaness, með þátttöku fjölda fyrirtækja og hagsmunaaðila í Grindavík.

Þuríður H. Aradóttir Braun, forstöðukona Markaðsstofu Reykjaness


Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Íslenska ferðaklasans