fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Kynningarfundur um útflutning og heimsókn í Græna iðngarðinn í Helguvík

Íslandsstofa hélt kynningarfund um íslenskar útflutningsgreinar á Hótel Keflavík þann 26. febrúar, í samstarfi við Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum (SSS). Fundurinn var vel sóttur af fulltrúum atvinnulífs og stofnana á svæðinu og skapaðist góð umræða um tækifæri og framtíðarsýn í útflutningsstarfsemi.

Á fundinum kynntu fulltrúar Íslandsstofu endurskoðaða langtímastefnu fyrir íslenskan útflutning sem miðar að því að efla útflutningstekjur og styðja við sjálfbæran hagvöxt. Einnig var farið yfir helstu tækifæri fram á veginn og þá þjónustu og aðgerðir sem standa útflutningsfyrirtækjum til boða. Fundurinn var sérstaklega gagnlegur fyrir fyrirtæki sem starfa á alþjóðlegum mörkuðum eða hafa áhuga á að hefja útflutning.

Í tengslum við heimsókn Íslandsstofu á svæðið heimsóttu starfsmenn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum og Íslandsstofu Græna iðngarðinn í Helguvík. Þar fengu þau kynningu á starfsemi iðngarðsins, framtíðarsýn og þeim uppbyggingaráformum sem eru fram undan. Græni iðngarðurinn gegnir mikilvægu hlutverki í þróun sjálfbærrar atvinnustarfsemi á Suðurnesjum og býður upp á spennandi tækifæri fyrir nýsköpun og uppbyggingu í tengslum við grænar lausnir og iðnað.

Heimsóknin undirstrikaði mikilvægi samstarfs á milli sveitarfélaga, atvinnulífs og stoðstofnana við að efla samkeppnishæfni svæðisins og styðja við áframhaldandi atvinnuuppbyggingu á Suðurnesjum.

Starfsmenn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum og Íslandsstofu ásamt Justine Vanhalst, verkefnastjóra, og Kjartani Eiríkssyni, stofnanda og forstjóra Græna iðngarðsins í Helguvík.

Karl Guðmundsson, verkefnastjóri stórfjárfestinga á sviði atvinnuþróunar hjá Forsætisráðuneytinu, flutti erindi á kynningarfundi Íslandsstofu á Hótel Keflavík.