fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Almyrkvi 2026 – Hvar finn ég upplýsingarnar?

Það styttist óðum í almyrkvann sem verður sýnilegur á Íslandi þann 12. ágúst, og undirbúningur vegna viðburðarins er nú á lokastigi. Sveitarfélög, viðbragðsaðilar, ferðaþjónusta og fjölmargir aðrir hafa unnið saman að undirbúningi síðustu mánuði til að tryggja öryggi og góða upplifun fyrir íbúa og gesti.

Til að auðvelda aðgengi að upplýsingum hefur Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum tekið saman helstu upplýsingaveitur sem tengjast almyrkvanum. Hér að neðan má finna yfirlit yfir hvar hægt er að nálgast upplýsingar um umferð, öryggi, þjónustu, viðburði og annað sem mikilvægt er að hafa í huga.

Visit Reykjanes

Á upplýsingasíðu Visit Reykjanes má finna upplýsingar sem snúa að undirbúningi á Reykjanesi, þar á meðal:

  • Áhorfsstaði og áfangastaði
  • Umferðarstýringu og lokanir
  • Öryggisupplýsingar
  • Þjónustu á svæðinu
  • Upplýsingar fyrir íbúa og gesti
  • Tengla á aðrar upplýsingasíður

Síðan verður uppfærð reglulega fram að almyrkvanum.

Fræðsla um almyrkvann

Á vef Sævars Helga Bragasonar má finna ítarlegar upplýsingar um almyrkvann sjálfan, meðal annars:

  • Gagnvirk kort
  • Tímasetningar
  • Hvar almyrkvinn sést best
  • Öryggisleiðbeiningar
  • Upplýsingar um sólmyrkvagleraugu
  • Ráð fyrir ljósmyndun
  • Fræðsluefni

Upplýsingar frá stjórnvöldum

Á island.is verða birtar samræmdar upplýsingar frá stjórnvöldum um:

  • Ferðalög
  • Öryggi
  • Umferð
  • Viðbragðsáætlanir
  • Mikilvægar tilkynningar

Umferð og lokanir

Á næstu dögum verða birtar endanlegar upplýsingar um:

  • Einstefnur
  • Lokanir
  • Aðgengi að vinsælum svæðum
  • Bílastæði
  • Umferðarstýringu

Við hvetjum alla til að fylgjast vel með upplýsingum frá Vegagerðinni áður en lagt er af stað.

Athugið: Vegurinn að Keili verður lokaður vegna umferðarstýringar í tengslum við almyrkvann en sú lokun birtist ekki á umferdin.is.

Sveitarfélögin

Sveitarfélög á Suðurnesjum munu birta upplýsingar um:

  • Viðburði
  • Þjónustu
  • Söfnunarstaði
  • Staðbundna umferðarstýringu
  • Opnunartíma
  • Upplýsingar fyrir íbúa
  • Lengd almyrkvans í hverju sveitarfélagi

Íbúar eru hvattir til að fylgjast með upplýsingagjöf síns sveitarfélags þar sem birtar verða staðbundnar upplýsingar eftir því sem nær dregur.

Fréttir af undirbúningnum

Víkurfréttir hafa fylgst náið með undirbúningi vegna almyrkvans á Reykjanesi undanfarna mánuði og birt fjölmargar fréttir, viðtöl og umfjöllun um verkefnið. Þar má meðal annars finna upplýsingar um undirbúning sveitarfélaga, viðbragðsaðila, ferðaþjónustu og fjölbreytta viðburði sem tengjast almyrkvanum.

Sameiginlegur undirbúningur

Almyrkvinn er einstakur náttúruviðburður sem verður sýnilegur um allan Reykjanesskagann. Góð samvinna sveitarfélaga, viðbragðsaðila, stofnana, fyrirtækja og annarra samstarfsaðila skiptir miklu máli til að tryggja örugga framkvæmd og góða upplifun fyrir alla.

Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum hvetur íbúa, fyrirtæki og samstarfsaðila til að fylgjast reglulega með upplýsingasíðunum og miðla áfram áreiðanlegum upplýsingum eftir því sem nýjar upplýsingar verða birtar.

Helstu upplýsingasíður