Opið fyrir umsóknir í Sóknarsjóð fyrir smærri fyrirtæki í Grindavík
Byggðastofnun hefur opnað fyrir umsóknir um styrki úr Sóknarsjóði fyrir smærri fyrirtæki í Grindavík. Markmið sjóðsins er að styðja við atvinnurekendur og efla rekstrargrundvöll fyrirtækja þannig að þau geti horft til framtíðar og áframhaldandi uppbyggingar.
Umsóknarfrestur er til kl. 16:00 fimmtudaginn 10. september 2026.
Við fyrri úthlutun úr Sóknarsjóði, sem fór fram í nóvember 2025, var úthlutað 130,4 milljónum króna. Nú verður úthlutað þeim fjármunum sem eftir standa af upphaflegu framlagi sjóðsins.
SSS hvetur öll styrkhæf fyrirtæki í Grindavík til að kynna sér úthlutunarreglur og nýta tækifærið til að sækja um stuðning við áframhaldandi uppbyggingu.
Hvað er hægt að sækja um styrk til?
Veittir eru styrkir til:
- Kaupa á búnaði eða tækjum sem efla starfsemi í Grindavík,
- Breytinga á rekstri sem styrkja stoðir núverandi starfsemi og stuðla að áframhaldandi rekstri.
Í umsókn þarf meðal annars að koma fram til hvers styrkurinn er ætlaður og hvernig hann mun nýtast fyrirtækinu til framtíðar.
Hverjir geta sótt um?
Sótt geta um einstaklingar og fyrirtæki sem:
- Voru með starfsemi í Grindavík þann 10. nóvember 2023,
- Eru með að minnsta kosti einn starfsmann á launaskrá við umsókn,
- Voru með ársveltu undir 250 milljónum króna árið 2023,
- Eru ekki í vanskilum með opinber gjöld,
- Hafa ekki verið teknir til gjaldþrotaskipta.
Umsóknir og nánari upplýsingar
Umsóknum skal skila í rafrænni Umsóknargátt Byggðastofnunar.
Nánari upplýsingar um Sóknarsjóð veitir Pétur Friðjónsson, verkefnastjóri Sóknarsjóðs, í netfanginu peturf@byggdastofnun.is eða í síma 455 5400.
Frekari upplýsingar