Landverðir ráðnir til Suðurnesja vegna umbrota
Í ljósi óvissuþátta sem tengjast umbrotunum á Reykjanesskaga hefur fengist fjármagn frá ríki til að ráða tvo landverðir til Suðurnesja til næstu tveggja ára og verður þörf á áframhaldandi landvörslu endurskoðuð að þeim tíma liðnum. Munu landverðirnir sinna þeim landvörsluverkefnum sem upp koma á svæðinu og eru til viðbótar við landvörð sem í dag sinnir öllu suðvesturhorninu.
Umbrotunum á Reykjanesskaga undanfarin ár hefur fylgt aukin umferð ferðamanna um svæði sem á köflum er viðkvæmt og ekki hættulaust. Þar sem engar vísbendingar eru enn um að draga muni úr jarðhræringunum á næstunni var ákveðið að setja aukið fjarmagn í landvörslu á gosstöðvunum svo hægt sé að bregðast við aukinni umferð um svæðið til lengri tíma.
Landverðirnir munu auk hefðbundina verkefna landvarða, svo sem fræðslu til gesta og eftirliti vegna viðkvæmnrar náttúru verða viðbragðsaðilum og lögreglu innan handar með upplýsingagjöf vegna eldsumbrota á Reykjanesi.