Lumar þú á góðri viðskiptahugmynd?
Heklan og Nýsköpunarmiðstöð Íslands munu bjóða á Suðurnesjum námskeiðið Brautargengi sem er sniðið fyrir konur sem vilja hrinda viðskiptahugmynd í framkvæmd í nýju eða starfandi fyrirtæki.
Markmiðið er að þátttakendur:
- Útbúi viðskiptaáætlun
- Kynnist grundvallaratriðum varðandi stofnun fyrirtækja
- Öðlist hagnýta þekkingu á rekstrartengdum þáttum s.s. stefnumótun, markaðssetningu, fjármálum og stjórnun.
Umsóknarfrestur er til og með 23. september.
Nánari upplýsingar veitir Anna Guðný Guðmundsdóttir í síma 522 9431