Samkeppni um bestu viðskiptaáætlunina
Nýsköpunarmiðstöð Íslands, í samstarfi við Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum og Hekluna, atvinnuþróunarfélag Suðurnesja leita eftir góðum viðskiptahugmyndum sem auka flóru atvinnulífs á Suðurnesjum.
Allir geta sótt um þátttöku í verkefninu en besta viðskiptahugmyndin fær allt að 1.000.000 í verðlaun.
Þátttakendur fá leiðsögn og fræðslu um áætlanagerð, vöruþróun og frumgerðasmíð. Verkefnið hefst í september og skila þátttakendur viðskiptaáætlun um verkefni sín í desember.
Umsóknarfrestur er til og með 23. september.
Umsóknarform og frekari upplýsingar eru á nmi.is/raesing eða hjá Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur og Sigurði Steingrímssyni.